Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1855
1855
1855

Á Fróni allra landa lýð

Hljóðbrot0:00

Lag Kálfar tveir í kúamynd

ÁÁ Fróni allra landa lýðleyft að selja og kaupa.Verslunar- er vorið tíðveitinga og staupa.

Mæna á búðarlokuliðlon og donstundum saman standa viðef staups er von.

Glúmur Gylfason · 1855

Heimildir og samhengi

Verslun við Ísland gefin frjáls öllum þjóðum 1. apríl.

Sjálfsævisaga Jakobs Hálfdanarsonar, bls. 90: ,,Þegar alþing hið nýja kom fyrst saman 1845, höfðu nokkrir af landsmönnum þá hugsjón um viðskiptaþörf sína að óska eftir að konungur lofaði fleiri þjóðum en Dönum einum að skipta við landsbúa, en ekki varð það þó í fyrstu einu sinni helmingur þingmanna sem gaf atkvæði sitt með þessu nýmæli. Svona var mönnum orðið okið inndælt og byrðin létt".

Þingmenn mega hafa haft fiskbrestinn mikla, 1686 til 1703, í huga, þegar bændur höfðu ekki handa kaupmönnum það sem þeir sóttust eftir sem borgun fyrir erlenda vörur og verslun var nú ekki enn orðin frjáls í Evrópu.
Verslunarfrelsi tók gildi í Leipzig 1862 og 1869 í Norður-Þýskalandi (Norddeutschen Bund), skv. Der Spiegel, Geschichte, 4/2018, bls. 89).

Þorvaldur Thoroddsen, Ævisaga dr. Pjeturs Pjeturssonar, bls. 108:
,,Stóð allmörgum stuggur af frjálsri verslun við útlendinga jafnvel þeim sem í stjórnmálum voru frjálslyndir; þeir héldu að siglingin myndi verða stopul svo skortur yrði á nauðsynjavöru".
Þessi ótti reyndist ekki ástæðulaus.
Saga Eyrarbakka, Vigfús Guðmundsson, 586-7, greinir frá viðvarandi vöruþurrð, þar til eftir 1872.

Sem innanríkisráðherra átti Rosenörn, stam. 1847-9 hvað stærstan þátt í að koma á verslunarfrelsi við Ísland 1855 og í mun frjálslegra formi en þeir íslenskir þingmenn og bændur vildu, er sömdu rómantískar bænaskrár um að bændur skyldu færa afurðir, ull og tólg, til skips svo sem á söguöld í skiptum fyrir vörur ERLENDRA farmanna vor og haust.
Aðeins þeir og forréttindastéttin þyrftu að versla eins og kom fram hjá Lögréttu 1639, sjá þar.

Jónas frá Hriflu var líkrar skoðunar skv. Guðjóni Friðrikssyni; Einar Ben. II, 301:
,,JJ dreymir um rómantískt afturhvarf til þjóðveldisaldar þar sem Íslendingar uni glaðir saman við landbúnað í dreifðum byggðum”.
Fyrstu íslensku verslunarfyrirtækin voru enda pöntunarfélög, Gránufjelagið (1870) og Borðeyrarfélagið og bændur þá enn andstæðir þéttbýlismyndun við strendur.

Í Árnesingi II, riti Sögufélags Árnesinga, segir Lýður Pálsson á bls. 35, að Selvogsbændur hafi eftir 1907 haft með sér pöntunarfélag hvar hver bóndi lagði fram pöntun til ársins. Keyptu svo inn í Reykjavík og fluttu sjóveg til Selvogs sem komst enda ekki í vegasamband fyrr en með Krísuvíkurveginum, sjá 1942.
Prestur Selvogsþinga, Eggert Sigfússon (1840-1908), verslaði þó á Eyrarbakka, og keypti þaðan kringurnar sem hann hengdi vikulega 7 uppi yfir rúmi sínu og át eina á dag. Vissi því ávallt hvenær messa skyldi.

Líkt var því varið með sóknarbörn hans. Þau vissu hve oft skyldi árum í sjó dýft á leiðinni milli Eyrabakkaverslunar og Selvogs.
Af Eyrarbakka og út í Vog
er það mældur vegur
átján þúsund áratog
áttatíu og fjegur. - ókunnur höfundur.

Guðmundur Hagalín, Konan í dalnum og dæturnar sjö, bls. 213: ,,kaupmaðurinn þótti oftast samur við sig og það einnig eftir að hann tók að mæla á tungu Íslendinga”.

Að baki liggur það forna viðhorf Íslendinga að fyrirlitlegt sé að stunda viðskipti í ábataskyni. Þar skyldu gilda Búalög frá um 1400. Sjá 1619.
Fær því Íslendingasagnaorðið ,,kaupahéðinn" um þann sem falbýður e-ð, neikvæða merkingu í Orðabók Forlagsins: braskari.

Í Eimreiðinni 1928 og endurbirt í Sögnum og þjóðháttum, bls. 52, Ísfoldarprsm. 1941, lýsir Oddur Oddsson beinum viðskiptum sveitafólks við útgerðarbændur á útnesjum syðra á síðari helmingi 19. aldar:
,,Flestir bændur ...áttu einhverja fasta skiptavini. Verslun á milli allra var aðeins vöruskipti, en skiptavinirnir lögðu ekki kapp á að græða hver af öðrum, heldur einungis að fullnægja þörf hvers annars. Sveitabóndinn kom með smjör, skinn, tólg og hangið kjöt, sjávarbóndinn lét skreið upp á hestana hvort sem það nam vöru hins í það sinn eða ekki. Næsta haust sendi svo sveitabóndinn skiptavini sínum sláturfé eftir ástæðum. Hugsunin hjá báðum var aðeins sú, að hinn skyldi ekki hafa skaða af viðskiptunum. Var fiskvirðið lagt til grundvallar þannig þá:
Smjör: 20 fiska fjórðungurinn. Tólg: 10 fiska fjórðungurinn.
Hangikjöt: 10 fiska fjórðungurinn". (Sjá 1619).

Staupa og brennivínsgjafir kaupmanna til bænda urðu vandamál sem ollu slysum á heimleið og voru síðar bannaðar. Sjá nánar þar um við 1890.
Sverrir Kristjánsson, Bóndinn á Brúnum, bls. 36: ,,...þar (í búð í Reykjavík) angar allt af heimslegum krambúðarilm, tóbaki og brennivíni ...eldri árgangar reykvískra götustráka taka í nefið og spýta mórauðu á gólfið og mæna þyrstum augum á lekabyttuna. Hinir frjálsbornu Íslendingar híma þarna stundum saman og bíða eftir því að ...búðarlokan rétti þeim staup".

Will Durant, Mannkynssaga: ,,...í augum grískra er hún (verslunin) aðeins til þess gerð að auðgast á kostnað annarra ...kaupa ódýrt, selja dýrt".

Verslunarfrelsi tók gildi í Leipzig 1862 og 1869 í Norður-Þýskalandi (Norddeutschen Bund), skv. Der Spiegel, Geschichte, 4/2018, bls. 89).

Aðrar heimildir: Brautryðjandinn, Skálholtsútgáfan 2011, bls. 30.
Sjálfsævisaga Hannesar Þorsteinssonar bls. 99.
Jón Helgason: Vér Íslands börn II, 22-32;

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1855

  • Vindur, segl og árar ört
← 1855Vindur, segl og árar ört1856 →Vala þekkti biskupana báða