Rektor lítils mjöðinn mat
Lag Fljúga hvítu fiðrildin
Rektor lítils mjöðinn matmálum sló í brýnupiltar hrópa: ,,Pereat!"París gefur línu.
Heimildir og samhengi
Kröfur uppreisnarmanna í Febrúarbyltingunni í París 1848, um aukið frelsi og lýðræði, bárust fljótt til annarra evrópulanda og hefur ,,Norðurreið Skagfirðinga" 1849 til amtmannsins á Möðruvöllum verið tekin sem íslenskt dæmi og tengist fjölskylduböndum við Dómkirkjuhneyksli Sveinbjarnar Hallgrímssonar 1850.
Einurð Þjóðfundarmanna 1851 er annað dæmi sem og e.t.v. erfðaréttur kvenna1850, verslunarfrelsi við Ísland 1855sem komst á annars staðar í evrópu um 1870 til '90. (Sjá 1916).
Með Pereatinu - uppreisn pilta gegn bindindiskröfu rektors, Sveinbjarnar Egilssonar, - rættist það sem margir þóttust sjá fyrir að yrði ef skólinn flyttist til Reykjavíkur frá Bessastöðum enda varð slóðinn langur og féllu m.a. tveir rektorar í valinn.
Til er heimild sem rekur pereatið til Febrúarbyltingarinnar í París 1848.
Minningar úr Menntaskóla Rvk. 1946, bls. 17:
,,Um pereats-hugmyndina sagði Steingrímur Thorsteinsson Jóhannesi kennara Sigfússyni svo, að Ólafur Gunnlaugsson (dr. phil. og ritstjóri í París, d. 1894) sem útskrifaðist úr Reykjavíkurskóla 1848 og um tíma hafði verið í dönskum skóla, hafi sagt skólapiltum ýmsar sögur frá útlöndum, einkum Þýskalandi, um það, að piltar hrópuðu pereat fyrir kennurum, er þeir vildu ekki hafa, og hefði svo pereatshugmyndin fæðst og þroskast í skólanum samfara frelsishugmyndum eftir 1848".