Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1848
1848
1848

Reyndist barnafræðslan flan

Hljóðbrot0:00

Lag Fyrr var oft í Koti kátt

RReyndist barnafræðslan flanfékk það margan glapiðer fjáðir létu fátækanfyrir sig borga tapið.Við kirkjuvígslu klukkan 12karlar bakka notispýtt ei skal á gang og gólfné gengið örna´skoti.

Glúmur Gylfason · 1848

Heimildir og samhengi

Efnt var til barnaskóla í Reykjavík 1831 í Aðalstræti 16, sem hafði verið lóskurðarstofa Innréttinganna.
Rosenörn stam. 1847 til 1849 stöðvaði nú skólahaldið er í ljós kom að það var kostað af Thorkeliisjóðnum, sem Jón Thorchilius (1697-1759), fv. rektor í Skálholti, stofnaði með erfðaskrá og ætlaði til skólahalds fátækum og munaðarlausum börnum í Kjalarnesþingi og svo hafði verið á Hausastöðum á Álftanesi, 1791-1812.
Dróst nú í 14 ár, til 1862 að skólahald byrjaði aftur í Rvk.

Konungleg tilskipun um lestrarkennslu kom 1790 og öld síðar, 1880, tilskipun um að börnum skuli kennt að skrifa og reiknina. Lestrarkunnáttu hafði prestum verið ætlað að fylgjast með frá og með siðbreytingunni eftir 1550 enda skyldu og fermingarbörn á 18. öld kunna kverið - Ponta, en Balle frá 1798.

Húslestra skyldu húsbændur skv. húsagatilskipuninni 1746 lesa á helgum dögum fyrir hyski sitt og ólæsa nágranna enda óheimilt að byggja ólæsum afskekktar jarðir.

Sem innanríkisráðherra átti Rosenörn hvað stærstan þátt í að koma á verslunarfrelsi við Ísland 1855 og í mun frjálslegra formi en þeir íslenskir þingmenn og bændahöfðingjar vildu, er sendu rómantískar bænaskrár um að færa skyldi afurðir til skips svo sem á söguöld í skiptum fyrir vörur erlendra farmanna einu sinni eða tvisvar á ári (sbr. 1581og 1777, 1845).
Sjá og1916 - þar kemur fram hjá Gunnari Þór Bjarnasyni, að verslunarfrelsi hafi orðið ráðandi í evrópu um 1890.

Rosenörn var nýorðinn stiftamtmaður þegar Dómkirkjan var vígð að nýju eftir stækkun 1848. Var það tveggja daga athöfn: vígslan byrjað á hádegi laugardaginn 28. október, en messa á sunnudeginum. Í bók sr. Þóris Stephensen, Dómkirkjan í Reykjavík, I. bindi, bls. 165-166, segir að eftir skamma dvöl hér hafi Rosenörn kynnst svo umgengnisháttum Íslendinga, að hann hafi fyrir vígsluna látið leggja strámottur á innganga og spýtubakka á gólf og í kór. Einnig komið fyrir járnkeðjum - síðar járnstöngum - sem lokuðu innskotum milli veggja utandyra svo að ekki væri hægt að kasta þar af sér vatni.
Við vígsluna sungu skólapiltar sálm i fjórum röddum við orgelundirleik Péturs Guðjónssonar, en lokaamen sungu þeir í þremur röddum.
(Gestur 2, bls. 201). Sjá og 1854.


Árni Óla: Gamla Reykjavík, mynd bls. 155, útg. 1969.
Sjá m.a. Sögu Stykkishólms II; bls. 199, og Ævisögu dr. Pjeturs Pjeturssonar, eftir Þorvald Thoroddsen, bls. 106.

Um séra Gunnlaug Oddsson, Dómkirkjuprest, segja Íslenskar æviskrár: ,,Kenndi mörgum nemöndum skólalærdóm ...kom og á fót barna- og unglingaskóla 1827". Einnig segir þar að hann hafi haldið kennara frá 1827 til ~1829, séra Þorstein Hjálmarsson (1794-1871), son Kristrúnar skálds Þorsteinsdóttur (sjá 1821).
Ekki kemur fram að þessi (einka)skóli hafi notið styrks frá Thorkeliisjóðnum.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1848

  • Með kveðju sinni sendi Marx
← 1848Með kveðju sinni sendi Marx1849 →Grími margt þeir báru á brýn