Til Ísafjarðar Ásgeir flyst
Lag Ég má bera hallan haus - Bj.Þ. 847
Til Ísafjarðar Ásgeir flystEyrar magnast sagaþaðan sækja þykir stystþorsk úr sjó að draga.
Heimildir og samhengi
Jón Þ. Þór: Saga Ísafjarðar I, bls. 162:
,,Vorið 1847 kom Ásgeir Ásgeirsson (eldri) frá Rauðamýri á Langadalsströnd til Ísafjarðar á skútu sinni, Lovísu, og urðu þá á margan hátt þáttaskil í sögu kaupstaðarins ..varð nú í æ ríkara mæli aðsetur athafnasamra Íslendinga”.
Ásgeir, f. Rauðamýri í Nauteyrarhreppi 1817, d. 1877), var lærður skipherra og gerði út 4 skútur til veiða og siglinga til útlanda fyrir verslun sína. Sjá m.a. bls. 224 í nefndri bók Jóns þ. Þór.
Eyri: hreppurinn nefndist Eyrarhreppur til 1866, kenndur við prestsetrið og það aftur við Skutulsfjarðareyri en það stóð efst á henni, en neðsti hlutinn nefndur Tangi. (1852).
Lúðvík Kristjánsson, Vestlendingar I, bls. 115: ,,Ásgeir má með réttu kallast faðir fyrsta sjómannaskólans hér á landi (sjá 1852). ... Fyrsta hélenda tryggingarfélagið var stofnað fyrir hans atbeina og fyrstu umtalsverðu atburðirnir viðvíkjandi verslunarsamtökum á Vesturlandi eru tengdir honum".