Árni hugði að hitanum
Lag Nú er liðin gullöld góð - Bj.Þ. 861
Árni hugði að hitanumhélt og veðurbækurtil verka kunni á veiðunumen versla miður sprækur.
Heimildir og samhengi
Árni Thorlacius (1802-1891) var lærður skipstjórnarmaður, útgerðar- og kaupmaður í Stykkishólmi, sem fyrstur skráði reglulegar veðurathuganir á Íslandi frá 1846. Hann var sonur Guðrúnar Oddsdóttur Hjaltalín að Reyðará og Ólafs Thorlacius, sjá 1790.
Oscar Clausen, Sögur af Snæfellsnesi II, 142: ,,1828 sigldi Árni galeas sínum frá Stykkishólmi til Björgvinjar og aftur til baka á 2ur vikum og sótti þá timbrið í sitt Norska hús". (Tvær vikur?! - Fær ekki staðist).
O. C., bls. 144: ,,En Árna var áreiðanlega sýnna um framkvæmdir svo sem siglingar og veiðiskap heldur en verslun ...hann tapaði á verslun sinni”.
Gils Guðmundsson: Skútuöldin I bls. 80.
Galeas: AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
HeimildBækur.is (opnast í nýjum flipa)