Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1825
1825
1825

Úr heimi Bólstaðarhlíðar Björn

Hljóðbrot0:00

Lag Ó, fögur er vor fósturjörð

ÚÚr heimi Bólstaðarhlíðar Björnbóndi og klerkur mæturátti samtals átta börnog allt voru það dæturvið það urðu allvel sáttenda mjög að vonumþví fleiri' hefur presta enginn áttenn að tengdasonum.

Glúmur Gylfason · 1825

Heimildir og samhengi

+ sr. Björn Jónsson í Bólstaðarhlíð, Hún., f. 1749. Með fyrri eiginkonu sinn, Ingibjörgu d. 1816 Ólafsdóttur á Frostastöðum Jónssonar átti hann 8 dætur, sem 7 urðu prestfrúr.

Lofaður í Íslenskum æviskrám Páls Eggerts Ólasonar: ,,Vel gefinn, vel að sér, hagmæltur, orðkringur og hagur, talinn með bestu kennimönnum, glaðlyndur, fjörmikill, búsýslumaður hinn mesti, og starfsamur, hlaut verðlaun frá kóngi fyrir vefnað".
Þar einnig haft eftir gömlum mönnum að hann sé réttur faðir sm. Björns Auðunarsonar Blöndal (1787-1846).

Kristín, dóttir Björns var móðir Þuríðar Þorvaldsdóttur sálmaskálds Böðvarssonar (sjá 1791), móður sr. Þorvaldar Jakobssonar í Sauðlauksdal, föðurafa Vigdísar Finnbogadóttur forseta.

7 dætranna giftust prestum.

(Ísl. æviskrár, Lúðvík Kristjánsson, Vestræna, 135).

Myndir

Einnig frá árinu 1825

  • Er heyrðu í bitanum brest
← 1824Ei var hann við alþýðuskap1825 →Er heyrðu í bitanum brest