Fyrir Ísland útlit dökkt
Lag Vertu, góði Guð, hjá mér – SB 553
Fyrir Ísland útlit dökktaf enskum drekum hafið krökktHöfn þeir skjóta' á, skipum sökktað Skerið sökkvi stendur glöggt.
Heimildir og samhengi
Jón Hjaltason: Saga Akureyrar I, 61: ,,Danir vildu ekki blanda sér í vopnaviðskipti stórþjóðanna (Frakka / Englendinga). ...sögðu nei (við að afhenda flota sinn Bretum).
30.000 enskir hermenn gerðu árás á Kh. og herskip héldu uppi stórskotahríð á borgina í 5 daga (frá 2. september). Það grátlega var, að Danir höfðu búist við árás franskra herja en ekki breskra
(upphafsmaður ófriðarins var Napoleon, sem fengið hefur mildari dóma en Hitler). Afleiðingin var að kaupskip sáust ekki nema með höppum og glöppum á Íslandi (lágu á hafsbotni eða dregin til Englands). Ekki bætti úr skák, að illa áraði. Var landið nær umflotið hafís veturinn 1806-1807”.
M.a. brann Dómkirkjan í Kh., Vor Frue Kirke, Háskólinn og 305 stór hús.
Þorkell Jóhannesson; Saga Íslendinga VII, 292: ,,Árás Englendinga 1807 og flotaránið var hið mesta ofbeldisverk og hefur aldrei tekist að réttlæta svo gífurlegt brot á rétti hlutlausrar þjóðar”.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Hér má sjá fallbyssukúlu frá 1807 standa í vegg á Strikinu í Kh.
Mynd2.bp.blogspot.com (opnast í nýjum flipa)
Einar Ólafur Sveinsson: Á Njálsbúð, bls. 134: ,,Miklir menn eru nærri því alltaf vondir", sem er tilvitnun í Acton lávarð.
Á bls. 15 í ævisögu Helgu Sörensdóttur eftir Jón Sigurðsson frá Ystafelli: ,,..á siglingaleysisárum Napoleonsstyrjaldanna (var) almennt hungur í landi Þá var allt nytjað sem éta mátti og innlent var, en fólkið kunni alls ekkert til garðræktar; fjallagrös þóttu þá hið mesta dýrmæti".
Sverrir Kristjánsson, Með vorskipum, 154: ,,Hinir ungu Íslendingar sem dvöldu við háskólanám í Kaupmannahöfn ...gafst kostur á ríku félagslífi og frjórri lífsnautn. Sú menning sem við kennum við álfu vora, Evrópu, barst okkur Íslendingum í hendur um Kaupmannahöfn. ...verður hlutur höfuðborgar danska ríkisins og þeirra íslensku menntamanna sem þar ólu aldur sinn part úr ævinni fyrir konunglega náð og privilegia tæpast ofmetinn þegar saga Íslands er skráð".
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)