Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1919
1919
1919

Íhaldið sín áhrif jók

Hljóðbrot0:00

Lag Eins í vöku og eins í blund - Bj.Þ. 829

ÍÍhaldið sín áhrif jók- aldrei á því staðið -á þessu ári yfirtókÁrvakur Morgunblaðið.

Glúmur Gylfason · 1919

Heimildir og samhengi


Kaupmenn í Reykjavík gerðu Ólafi Björnssyni (Jónssonar ráðherra) tilboð sem ekki var hægt að hafna.
Vildu kaupa hans hálfa hlut í Morgunblaðinu ella stofnuðu þeir sitt eigið blað og birtu þar allar sínar auglýsingar, segir í ævisögu Vilhjálms Finsen, 1953: Alltaf á heimleið.
Kemur fram hjá Vilhjálmi, að Ólafur færði honum fréttirnar af ,,tilboði" Árvakurs, en einn kaupmannanna var Ólafur Þ. Johnsen, tengdafaðir hans, sem var eigandi hússins Esjubergs í Þingholtsstræti 29A.
Varð úr að báðir seldu Árvakri hluti sína í blaðinu.
Annar tveggja ritstjóra varð Valtýr Stefánsson. (1913, 1885).

Í október varð Alþýðublaðið málgan Alþýðuflokksins.
Tíminn hafði verið blað Framsóknarflokksins frá 1917.

Í Sögunni um Hallgrím Kristinsson: Úr Djúpadal að Arnarhóli, bls. 292, telur höfundur, Páll H. Jónsson, uppgang SÍS, og kaupfélaganna hafa ráðið því að kaupmenn keyptu Morgunblaðið og ,,hófust nú hin grimmilegustu átök á milli Tímans og Morgunblaðsins". (1922, 1913).

Guðjón Friðriksson, Íslenska söguþingið 1997, bls. 47: ,,Á vegum þessara flokka (Alþýðu- og Framsóknarflokks) voru stofnuð blöð (Alþýðublaðið, Tíminn o.fl.), sem beinlínis höfðu það að markmiði að reka áróður fyrir þá. Borgarlegum öflum, sem síðar sameinuðust í Sjálfstæðisflokknum, fannst sér ógnað og yfirtóku Vísi og Morgunblaðið og gerðu þau að málgögnum sínum".

Vefur24sava.blogspot.com (opnast í nýjum flipa)

Vefuris.bons-sites-web.com (opnast í nýjum flipa)

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1919

  • Svörtum fjöðrum flugið tók
  • Með Botníu kom einn bolsjevík
  • Sýnist þýskri senu steli
← 1919Svörtum fjöðrum flugið tók1919 →Með Botníu kom einn bolsjevík