Erlendur í einni beit
Lag Fer jeg nú að fara á kreik (sbr. Bj.Þ. 832)
Erlendur í einni beiteins kann hita og steikjameð gufuröri virkja veitvarma Sturlureykja.
Heimildir og samhengi
Kristleifur Þorsteinsson, Úr byggðum Borgarfjarðar, II, 204:
1908 ,,steypir Erlendur (Gunnarsson, Sturlureykjum) yfir gjósandi suðuauga hversins og leggur frá því pípur heim í bæinn - eldheit gufan streymir um pípurnar.
1911 steypir hann eldavél í sambandi við gufuleiðsluna, sem fullnægði heimilinu til allrar suðu í eldavél og ofna til upphitunar".
Framtak greinds Erlendar, d. 67 ára, 1919, segir Kristleifur vera fyrstu jarðvarmanýtingu í Borgarfirði að heitið geti síðan 23. september 1241.
Hverinn stóð mun lægra en bærinn á Sturlureykjum svo ekki mátti leiða vatn í pípunum, en gufu fluttu þær.
Vefursturlureykirhorses.is (opnast í nýjum flipa)
Minnisvarði um Sturlureykjahjón, Andreu Jóhannesdóttur og Erlend Gunnarsson:
Vefurskessuhorn.rat.nepal.is (opnast í nýjum flipa)
Guðrún Erlendsdóttir frá Sturlureykjum giftist til Arnbjargarlæks í Þverárhlíð og reisti þar og innréttaði 1923 með manni sínum, Davíð Þorsteinssyni, ,,ríkasta vinnumanni lansins", (Öldin okkar 1910), stærsta og glæsilegasta íbúðarhús í sveit hérlendis - sjá mynd.
Umfjöllun Helga Bjarnasonar (helgi@mbl.is) í Morgunblaðinu 1. júní 2023, bls. 28:
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)