Um Alþingishúsið stendur styr
Lag Í dauðans böndum Drottinn lá
Um Alþingishúsið stendur styrog straumar vestur hverfa,,skortur og hungur við hvers manns dyrog hrossin látin sverfa.”Í hafísþaka heljargreipumhafnir inniloka,,svo heyið kemst ei heim í reipum- hirt í poka”.
Heimildir og samhengi
Alþingishúsið tekið í notkun og kostar þriðjung fjárlaganna, 100.000 kr. Húsið hannaði Ferdinand Meldahl. Yfirsmiður F. Bald og með honum unnu steinsmiðir frá Borgundarhólmi og múrarar frá Kaupmannahöfn og Íslendingar víða að af landinu þeim til aðstoðar, sem læra skyldu vinnubrögð við steinsmíði.
Hornstein lögðu landshöfðingi og biskup, sem vígði húsið Heilagri þrenningu, og á silfurplötu undir hornsteininum er áletrun, Jóh. 8, 31: ,,Sannleikurinn mun gera yður frjálsa”.
HeimildAlþingi (opnast í nýjum flipa)
Verðlag þá skv. ævisögu Helgu Sörensdóttur, bls. 134: Haustlamb 5 krónur, smjörkíló og ullarkíló jöfn, 1 kr., árslaun vinnumanns í sveit 100 kr. auk fæðis og fata, en hestverð í kringum þá tölu.
,,Eftir annálsvert góðæri 1880 byrjaði á 2. jóladag það ár hinn grimmasti vetur sem yfir Ísland hafði komið”. (Kristl. Þorsts., Úr byggðum Bfj. II, 105.) 3ja álna ís á Akureyrarpolli og -32°C 21. mars, -37°C á Siglufirði. Frost fór ekki úr jörðu á Suðurlandi (Vigf. Gðm. Oddi, 110). Jarðir fóru í eyði vegna harðinda og vesturferða.
Áætlað er að 18.200 lömb hafi drepist í Suðuramtinu.
Það litla sem skófst af jörðu á slætti tolldi ekki í reipum, en varð að reiða heim í pokum.
Í ævisögu Helgu Sörensdóttur eftir Jón Sigurðsson frá Ystafelli, bls. 100, segir að hestheldur lagnaðarís hafi verið frá Vargsnesi þvert yfir Skjálfanda til Húsavíkur. ,,Utan þessarar línu var hið mikla Ódáðhraun ísbreiðunnar. Út yfir það sást ekki af hæstu fjöllum". (Viknafjöll ~1000 m há).
Sigurður Þorsteinsson: Endurminningar Jóns frá Hlíðarenda, 38: ,,Veturinn 1881...kom hafís hér sunnanlands, 12. febrúar var öll Þorlákshafnarvíkin full af ís og svo langt austur með landi sem til sást”.
Skv. Kristleifi Þorsteinssyni, Úr byggðum Borgarfjarðar I, 103, frusu föt og matur í húsum inni enda kaldara þar en í ísskáp nú.
Samskot í Danmörk og víðar og söfnuðust 300 þús. kr. á þessu ári og næsta, þ.e. jafnt fjárlögum þetta ár.
Að frumkvæði Eiríks Magnússonar (1833-1913), bókavarðar í Cambridge, voru samskot í Englandi og keypt korn og 350 tonn af matvöru sem Eiríkur flutti á skipi umhverfis Ísland og úthlutað var á næsta ári. Einnig ensk pund sem jafngiltu 86.500 kr.
Skjalmosi.blog.is (opnast í nýjum flipa)
Var þá rúmur áratugur síðan samskot voru tekin í Danmörk og víðar í evrópu vegna hafíss og harðinda á Íslandi 1867-70. Á Tjörnesi át fólk þá skóbætur, bein og ókæstan hákarl, sem er óæti. Nú, voru ,,ísjakar fram á dýpstu fiskimið undan Reykjanesi og árum ekki í sjó komið. Fiskur fraus í bátum og varð hvorki seilaður né slægður við lendingu”.
Inn til fjalla II, 23: ,,...um miðjan janúar var gengið af Akranesi til Reykjavíkur ... yfir Hvammsfjörð og út í Stykkihólm, frá Reykjanesi upp á Skógarströnd og í land úr Flatey á Breiðafirði".
Aðrar heimildir og tilvísanir:
Bragi Guðmundsson: Héraðsstjórn í Húnaþingi bls. 45; tilvitnanir eru í Magnús Björnsson á Syðra-Hóli; hitatölur frá Kristni Guðlaugssyni, Núpi; Minningar Sigurðar frá Syðstu-Mörk;
Guðm. Hagalín: Virkir dagar I, bls. 84 ævisaga Sæmundar Sæmundssonar.
Eldur á Möðruvöllum, bls. 692 - samskotin.