Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1862
1862
1862

Aleinar helgidómsins dyr

Hljóðbrot0:00

Lag Jesú Kristi þig kalla eg á

Ich ruf zu dir, Herr Jesu Christ

AAleinar helgidómsins dyrdónar sem æðri brúkaPétur þó ekki að því spyrnær upp ger bók að ljúka:í kirkju á Akureyri fyrrætluð þér væri stúkaeða hurð við húkahrærir fyrir þá skárri skyren skálkar niður fjúka.

Glúmur Gylfason · 1862

Heimildir og samhengi

Akureyri með 286 íbúa fær kaupstaðarréttindi að nýju.
Fékk þau 1786, missti 1836 enda girti Alþingi í veg fyrir þéttbýlismyndun með vistarbandi, hömlum á ferðafrelsi og hjónaband búlausra og aldurstakmarki á dýrtselda lausmennsku (sjá t.d. 1845, 1887, 1783). Varð því Akureyri aftur hluti af Hrafnagilshreppi 1836.
Rétturinn var í fyrra sinnið sá, að kaup- og iðnaðarmenn fengu ókeypis lóð frá kóngi er hann keypti úr landi Nausts og síðar Stóra-Eyrarlands. Nú fylgir réttur ríkra karla til að ráða málum sínum sjálfir með kosningu í bæjarstjórn.

,,...lífseigar voru áhyggjur af því að iðnvæðing og þéttbýlismyndun ógnuðu stöðu sveitanna". (Ragnheiður Kristjánsdóttir, Nýtt fólk, 331).
Í bændasamfélaginu var litið niður á þéttbýlisfólk, sbr. t.d. viðhorf til Vestmannaeyinga sem áttu ekki betra skilið1627 - a.m.k. þegar kóngur bað um samskot til að leysa þá út úr slaveríinu.

Akureyringar höfðu í áratug reynt að fá kirkju, en sókn áttu þeir að Hrafnagili og þar sat prestur sem ekki vildi fjölga annexíum.
Rígur var milli þétt- og dreyfbýlis og nokkuð um að Akureyringar sæktu kirkju í aðrar sóknir og létu jafnvel grafa sig handan fjarðar.
Eftir að leyfi fékkst fyrir kirkju á Akureyri var deilt um staðsetningu milli ,,fjalls og Fjöru” og það svo að tveir grunnar voru grafnir.
,,Kirkjusmíði hófst í Fjörunni á útmánuðum 1862. Mikið reisugildi haldið 28. maí, fánar á stöng, af fallbyssum skotið” skrifar ritstjóri Norðanfara í 1. tbl. og að þar hafi Bakkus verið mættur, en prestur ei. Stórhneykslanlegt þyki að turninn sé á austurgafli: HeimildSarpur (opnast í nýjum flipa)

Turninn fluttur 1877MyndFlickr (opnast í nýjum flipa)
og á flóði verði að krækja upp fyrir kirkjuna eins og forvaða. Verst þótti þó, að aðeins einar dyr voru á húsinu. Ekki vegna eldhættu, heldur hins, að heldra fólk mátti þá ganga um sömu dyr og almúgi – er haft eftir prestinum, Daníel Halldórssyni, er sat sem fastast á Hrafnagili.
Kirkjan þjónaði söfnuðinum til 1940 þegar byggðin hafði frá því fyrir aldamót vaxið norður til Oddeyrar, sem sameinuð var kaupstaðnum 1866.
(Í Rvk. gengu heldri borgarar þá um skrúðhúsdyr; heimild: sr. Þórir Stephensen).

Heimildir m.a: Saga Akureyrarkirkju, bls. 61; Klemens Jónsson: Saga Akureyrar bls. 26 og 80.
Saga Akureyrar eftir Jón Hjaltason, I, 193 (kirkjan), byggingarsaga bæjarhlutanna frá bls. 165.

Vefuradventures.is (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Gullna hliðið (Davíðs):MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1862

  • Hagyrðingur frá Heiði' af stað
← 1861Sýnist mörgum um forseta fátt1862 →Hagyrðingur frá Heiði' af stað