Natani var unnið á
Lag Fyrr var oft í Koti kátt
Natani var unnið áá Illugastöðum forðumþá Blöndal átti um sýslu að sjásæmdur frakka og borðum:,,Bændur! skuluð vera viðað verri útreið forðumsvo húnvetnskt þjófa- löglaust liðláti af ráni og morðum".
Heimildir og samhengi
Síðasta aftaka á Íslandi.
Eftir að líflátsdómur hafði fallið á þremur dómstigum voru hálshöggvin við Þrístapa í Vatnsdalshólum, Friðrik Sigurðsson og Agnes Magnúsdóttir.
Böðull: Guðmundur Ketilsson (1791-1859), bróðir Natans, sem þau fyrrnefndu myrtu 14. mars 1828.
Sýslumaður var Björn Blöndal (1787-1846), en frakki einkennisklæðnaður sýslumanna og múgamönnum ekki heimilt að klæðast þannig ,,upp fyrir stand”.
Ágúst á Hofi leysir frá skjóðunni, bls. 22: ,,Þegar Björn Blöndal tók við Húnavatnssýslu var þar mikil óöld. Misindismenn óðu þar uppi með gripdeildum og ofbeldi. ...Þegar aftaka Friðriks og Agnesar fór fram í febrúar 1830 stefndi Björn til fjölmenns þings og skipaði hverjum að sitja og standa sem honum þótti hæfa. ...Björn Blöndal er í ýmsum heimildum talinn launsonur séra Björns (Jónssonar) í Bólstaðarhlíð hins kynsæla sem átti 8 dætur með tveimur eiginkonum og urðu 7 prestfrúr". Sjá 1749 og 1825.
Í Evrórpu var dauðarefsing fyrst numin úr lögum í Flórens 1745.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)