Magnús og Stefán stíla skrá
Lag Afi minn fór á honum Rauð
Lag Se den lille kattekilling
Magnús og Stefán stíla skrátil stjórnarinnar niðri,er bauð að skyldi baða þábáða tjöru og fiðri.
Þakkir fyrir þeygi kunnuþessa bænaskráer níu hundruð húsin brunnuHöfn í eyði lá.
Heimildir og samhengi
Þeir sem keyptu kóngsverslanirnar 1788 skulduðu stjórninni andvirðið lengi; hún svipti þá því ekki aðstöðunni fyrr en 1855.
En í byrjun síðasta áratugar 18. aldar varð aflabrestur sem þrengdi kost kaupmanna.
Óttaðist þá stjórnin að þeir sem keypt höfðu eignir konungsverslunarinnar yrðu ekki borgunarmenn fyrir skuldinni og bannaði 1792 lausakaupmönnum að versla annars staðar en á kaupstöðunum 6: Þeir voru: Reykjavík, Grundarfjörður, Ísafjörður, Akureyri, Eskifjörður, Vestmannaeyjar.
Fastakaupmennirnir gerðu þá samtök um verðlag og hækkuðu erlenda vöru en lækkuðu innlenda.
Þessu mótmæltu Magnús Stephensen og Stefán Thorarensen með ,,Almennu bænaskránni".
Heimild: Árni Daníel Júlíusson - Jón Ólafur Ísberg: ,,Aldir bændasamfélagsins", bls. 79:
Nýlendur Breta í Ameríku höfðu farið sínu fram síðan 1776, bylting í París frá 1789og kóngurinn þar týnt höfðinu 1793 svo nú var meiri hugur og minni auðmýkt í mörgum.
Að sama skapi voru valdhafar varir um sig og í Kaupmannahöfn glímdu þeir við þann vanda að tugþúsundir voru á vergangi eftir eldsvoða 5. júlí þar sem 941 hús brann og svaraði stjórnin bænaskrá þeirra frænda með ósk um samskot á Íslandi til handa íbúum Kaupmannahafnar, sem þó varð ekki af.
Sm. Magnús Ketilsson (1773) taldi að orðalag skrárinnar, ,,með svoddan frekju og grófheitum, spilli góðum málstað”.
Stam. Ólafur Stefánsson tók ekki undir kröfuna um fullt verslunarfrelsi.
Verslunarfrelsi komst á í Prússlandi 1810, en verslunarfrelsi orðið ráðandi í evrópu um 1890.
Verslunarfrelsi tók gildi í Leipzig 1862 og 1869 í Norður-Þýskalandi (Norddeutschen Bund), skv. Der Spiegel, Geschichte, 4/2018, bls. 89.
Málvenjan að niður sé til Danmerkur en upp til Íslands kemur t.d. fyrir í sjálfsævisögu Jakobs Hálfdanarsonar á bls. 93.
Á bls. 90 segir Jakob að ekki hafi fengist meirhluti fyrir að óska eftir verslunarfrelsi á fyrsta íslenska ráðgjafarþinginu 1845. Sjá 1581.
Gísli Gunnarsson: Upp er boðið Ísaland, bls. 268:
,,Íslendingar fóru að gagnrýna einokunarverslun danskra kaupmanna og aðrar hömlur á utanríkisverslun landsins á síðustu áratugum 18. aldar og héldu þeirri gagnrýni áfram á 19. öldinni. Hér var óneitanlega um stefnubreytingu að ræða miðað við umræðuna 1770-1771. Oddvitar Íslendinga fóru að krefjast þess að fríverslun væri aukin. Danska stjórnin var ávallt andsnúin þessum kröfum og taldi þær ógna samheldni ríkisheildarinnar.
Í þessum deilum íslenskra forystumanna og danskra stjórnvalda eftir lok einokunartímabilsins 1787 er að finna rætur þeirrar almennu fordæmingar á ,,dönsku einokunarversluninni" 1602-1787, sem varð ráðandi í íslenskri sagnaritun og þjóðarvitund á 19. öld.
Í þessari fordæmingu varð einokunarverslunin að átakamáli milli Dana og Íslendinga og varð á þann hátt mikilvægt áróðursatriði í þjóðernisbaráttunni.
Sérhver öld skapar sagnaritun í sinni eigin mynd". (1581, 1604).
Sjá og frásögn Jóns Hjaltasonar í Sögu Akureyrar I, frá bls. 34 um bænaskrána og vanda í versunarháttum 1778 til 1855.
Einnig Der Spiegel Geschichte 2021, 1, bls.113.
Í bænaskrá þeirra Magnúsar og Stefáns, sem kölluð var sú Almenna, er krafist fulls verslunarfrelsis. ,,Hér kynni í fyrsta skipti að gæta áhrifa frá Adam Smith í ritum Íslendinga".
(Lýður Björnsson, Upplýsingin, bls. 108).