Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1792
1792
1792

Póstur um Hellisheiði fór

Hljóðbrot0:00

Lag Dvel ég í draumahöll, eða J. Helgas. lestur

PPóstur um Hellisheiði fórhestlaus í veðri stóruhamaðist stormur, hregg og snjórhvergi sá þar glórulandfógeta leitin barlanga vegu fóruuns kenndu menn að Klemens varkominn í bland við Jóru.

Glúmur Gylfason · 1792

Heimildir og samhengi

Varð úti, á Hellisheiði syðri, austanpósturinn Klemens Þorsteinsson. f. um 1750.
,,Hafði heilmörg (119) bréf, peninga og silfur í pósttöskunni, hún fannst aldrei, en hann löngu síðar”, segir í Söguþáttum landpóstanna eftir Helga Valtýsson, I. hefti bls. 31.
Austanpóstsins var leitað í febrúar af 150 mönnum vestan og sunnan heiða og frá bæjum í Ölfusi. Hann hafði m.a. afsöl fyrir kóngsjörðum til kaupenda austanfjalls sem áttu að fara til sm. Steindórs Finnssonar í Oddgeirshólum.
Síðar talið að nakið lík sem fannst í Jórugili nálægt Nesjum í Grafningi væri pósturinn. Taskan var þar ekki.
Margt var um rætt en ekki rannsakað frekar.
Tilvísun: Heimir Þorleifsson, Póstsaga Íslands, bls. 93.

Jóra var tröll sem getið er í þjóðsögum Jóns Árnasonar:
,,Þegar Jóra var sest að í Henglinum ....skyggndist hún um eftir ferðamönnum, sem um veginn fóru...sem liggur skammt frá hamragili því sem heitir enn í dag Jórukleif, af því Jórunn lá þar oft fyrir ferðamönnum til að ræna þá eða drepa”.

Helgi Þorláksson, Á sögustöðum, bls. 342: ..Í sögum...frá 17. öld, vafalaust að stofni frá miðöldum ...segir frá því að Noregskonungur (Ólafur helgi Haraldsson (?)) hafi lagt landsmönnum lið í bartáttu við illvættina Jóru í Jórukleif í Grafningi. Konungur fékk Íslendingi einum öxi og mælti fyrir um hvernig henni skyldi beitt gegn illvættinni. Jóra var vegin með öxinni, sem rak síðan upp í Öxará, samkvæmt sögunni, og þar hafi Íslendingar valið sér þingstað og áin heiti síðan Öxará, segir þar".
FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)

Þessi landpóstur er betur út búinn: Myndfeykir.is (opnast í nýjum flipa)

FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

HeimildFerlir (opnast í nýjum flipa)

VefurGuide to Iceland (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

← 1791Þorvaldur missti kall og kjól1793 →Skúli ferli í friði lauk