Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1780
1780
1780

Landsins nýja lækni nú

Hljóðbrot0:00

Lag Fyrr var oft í Koti kátt

LLandsins nýja lækni núlýst vel á þá vinnu.Biskupsdóttir og biskupsfrúbáðar í einni kvinnu.Hvort Jón Teitsson træði Kjöltelja engar ræðuren ráku fé þann reimda spölReynistaðarbræður.

Glúmur Gylfason · 1780

Heimildir og samhengi

Margrét Finnsdóttir (1734-1796), biskups, Jónssonar, var 2. kona sr. Jóns Teitssonar (1716-1781). Hann, síðast prestur í Gaulverjabæ, en verður nú biskup á Hólum eftir að Oddapresti, Árna Þórarinssyni (1741-1787), hafði um sinn tekist að koma sér hjá þeirri vegtyllu, en að Jóni Teitssyni látnum, 1781, var ný undanfærslubeiðni Árna ekki tekin til greina, vígður Hólabiskup 1784. (1748, 1801).
Heimild: Vígfús Guðmundsson frá Keldum: Oddi, bls. 90-95.
Upplýsingar skortir um hvern veg þau Margrét og Jón Hólabiskup ferðuðust að sunnan til Skagafjarðar, en hafa verið fyrr á ferðinni en Reynistaðarmenn, sem urðu úti á Kili.

Nýr landlæknir, Jón Sveinsson (1752-1803), lögmanns Sölvasonar.
Fyrsti landlæknirinn, Bjarni Pálsson lést 1779 eftir 19 ár í embætti.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Reynistaðarbræður, synir Halldórs Bjarnasonar og Ragnheiðar Einarsdóttur (1759): Bjarni, tvítugur, og Einar 11 ára(?) og tveir vinnumenn, héldu til fjárkaupa á Suðausturlandi, þangað sem fjársýkin hafði ekki komið. Úr Hreppum lögðu þeir af stað norður 2. laugardag í vetri, (28. október), en urðu úti á Kili. Sjá 1844.
Heimildir: Íslenskar æviskrár. Um Reynistaðarbræður: Gísli Konráðsson, Skagfirðingabók 1969, Saga frá Skagfirðingum I, 110 og kvæðið Áfangar eftir Jón Helgason.

FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Myndir

← 1779Grallarinn þrykktur í síðasta sinn1781 →Úr Skálholti Bjarni til Flóa fer