Við Háskólann kenna nú fleiri fög
Lag Blessuð sólin elskar allt
Við Háskólann kenna nú fleiri fögfílu og júru líkaÞorsteinn vissi að velja lögog Valgerði Bjarna ríka.
Heimildir og samhengi
Þorsteinn Magnússon (1714-1785) lýkur fyrstur Íslendinga háskólaprófi í lögfræði.
Skv. tilskipun 10. febrúar 1736 var stofnað til fullkomins lögfræðiprófs við Kaupmannahafnarháskóla. Settist þá þegar í lagadeildina Þorsteinn Magnússon (1714-1785) og lauk prófinu 1738, síðar sm. Rangárvallasýslu, búsettur á Móeiðarhvoli, átti Bauka-Jón að móðurafa (1690), en að konu Valgerði Bjarnadóttur ríka, Skarði (1704, 1714), Péturssonar. Bjarni ríki var 4ði í beinan karllegg frá Staðarhóls-Páli (1558). Tengdamóðir Þorsteins var Elín, dóttir Þorsteins á Skarði, sonar sr. Þórðar Jónssonar í Hítardal, sem fyrstur lauk attestatusprófi í guðfræði, 1629, og Helgu Árnadóttur lm., Oddssonar biskups, en móðir Elínar var Arnfríður Eggertsdóttir ríka, Skarði, (1628, 1681, 1704) Björnssonar að Saurbæ Rs., Magnússonar prúða. Kona Eggerts ríka var Valgerður Gísladóttir lm. Hákonarsonar, Bræðratungu, Árnasonar síðast á Hlíðarenda, Gíslasonar, (1608, 1628, 1631, 1681). (Ísl. æviskrár).
10. febrúar 1736, þegar lagadeildin var stofnuð við háskólann í Kh. var þá og síðan gefinn kostur á að ganga umdir e-k hæfnispróf ,,examinati juris" án þess að hafa stundað nám við skólann.
Strax, 13. apríl þreytti slíkt próf náfrændi Þorsteins Magnússonar, Jón, sonur þess lögfróða prests, sr. Þórðar á Staðastað, Jónssonar Hólabiskups (bauka). Jón Þórðarson var settur sýslumaður í Rangárþingi eftir að Nikulás Magnússon (sjá 1742) drukknaði í Nikulásargjá (peningagjá) en drukknaði í embættisferð milli Vestmannaeyja og lands 19. maí 1743.
Sá frægi biskup, Bauka-Jón Vigfússon (sjá m.a. 1690) var því afi beggja þessara lögfróðu manna, Þorsteins Magnússonar, cand. jur, og Jóns Þórðarsonar, examinatis juris.
Heimild: Agnar Kl. Jónsson, Lögfræðingatal.
HljóðritÍsmús (opnast í nýjum flipa)
Dóttir Þorsteins sm. og Valgerðar á Móeiðarhvoli var Sigríður, en hennar dóttir Valgerður Jónsdóttir biskupsfrú tvisvar (1856), en sonur, Jón á Ármóti (1842, 1738).
(fíla: heimspeki; júra: lögfræði).
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Sigurður Líndal í Ráðstefnuriti ll, Íslenska söguþingsins 1997, bls. 342:
,,Hér má bæta við, að stofnun lagadeildar við Háskólann í Kaupmannahöfn 1736, en frá henni barst ný lögfræði til Íslands og forn lagavizka sem þróazt hafði samkvæmt reynslu kynslóðanna lét undan síga fyrir erlendri háskólalögfræði sem mótast hafði af heimspekilegum lærdómi".