Fyrrum Oddur hátt bar haus
Lag Fyrr var oft í Koti kátt
Fyrrum Oddur hátt bar hausherraður og lenduren æru- bæði og eignalausuppi rúinn stendurvirðum þótti ræðan rausog ráð hans eigi bætiað hann settist ærulausupp í lögmanns sæti.
Heimildir og samhengi
Við 1695er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m.
Móðir hans var Sigríður Hákonardóttir sm. Gíslasonar lm. Hákonarsonar sm. Árnasonar sm. harðdrægs áflogamanns (1569) Gíslasonar og sú föðurætt til stórræðaklerksins fjölkunnuga, Þorkels Guðbjartssonar, d. 1483, en móðurætt til Jóns Pálssonar Maríuskálds, d. ~1471 er báðir voru prófastar og officiali og þó marg bannfærðir fyrir að fara fyrir vopnuðum herflokkum gegn sínum biskupum.
Þegar þeir eru rétt myndugir, 1426, lýsir útlendingur, Hannes Pálsson, höfðingjum Íslands (sjá 1708) á sama hátt og Jóhann Gottrup gerir í bréfi til kóngs1725, sjá þar.
Móðir Sigríðar var matrona Helga Magnúsdóttir í Bræðratungu, Björnssonar lm. og Elínar Pálsdóttur (Staðar-Hóls), og rekst ætt hennar líka til fyrrnefnds Þorkels Guðbjartssonar.
Faðir Odds var, séra Sigurður á Staðastað, Sigurðssonar eldra pr. Stafholti, Oddssonar biskups, Einarssonar prf. og sálmaskálds Eydölum.
Föðuramma Odds var Guðrún Jónsdóttir pr. Hítardal Guðmundssonar og k.h. Guðríðar Gísladóttur lm. Þórðarsonar lm. Guðmundssonar.
Oddur Sigurðsson fv. kónglegur klh.., sm., lm., og fulltrúi stam., settist í lögmannssæti á Alþingi. Amtmaður hafði vikið honum frá umboðum 1721 og lögmennsku 1724 og alþingi dæmt hann ærulausan 1725. Hafði nú, 1726, fengið konungsleyfi til að áfrýja til Hæstaréttar og var svo sigurviss að settist óboðinn í sæti lögmanns. Vék ekki þaðan með góðu fyrr en ljóst var að enginn vildi leggja mál í hans dóm.
Hæstiréttur staðfesti æruleysisdóminn
VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)
Æruna fékk Oddur þó aftur að stam. Raben látnum 1729. Hefur með ,,persónutöfrum sem hann átti til í ríkum mæli" (Sverrir Kr.) heillað nýjan stiftamtmann, Gyldencrone barón, sem fékk kóng til að veita Oddi uppreist æru. Fékk OS þá upptökuheimild sem endaði í Hæstarétti ,,Oddi mjög í vil... en J. Gottrup varð mjög illa úti". (Sverrir Kr.). Sjá 1708, 1713, 1716, 1721, 1724, 1726, 1733, 1741.
Heimildir: Íslenskar æviskrár; Jón Aðils, Ævisaga Odds Sigurðssonar lögmanns; Sverrir Kristjánsson: Með vorskipum.
Jón Aðils í ævisögu Odds, bls. 277:
,,Aldrei hefir e.t.v. nokkur maður í sögu þessa lands látið meira á sér bera um sína daga en minna eptir sig liggja”.
Þetta má skilja bókstaflega af því að Oddur átti ekki einu sinni afkomanda enda aldrei við konu kenndur eftir að unnustan dó.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)