Þrætur landa þykja banal
Lag Jólasveinar 1 og 8
Lag Lok, lok og læs og allt í stáli -
Þrætur landa þykja banalþeirra meðal Odds og Pálsenda sumir oní kanalen Oddur (S)sig(.) þar skar á háls.
What shall we do with the drunken sailor
Oddur sigldi í 60 dagaá sjónum var þeim allt til bagasíðast bara bein að nagaer báturinn mátti slaga.
En ;.; ef hann kemst á undan Páli ;.;þá lok, lok og læs og allt í stáli,lokar fyrir Páli.
En ;.; Hæstiréttur réðst á stálið ;.;og ruddi því burt frá Páli.
Heimildir og samhengi
Við 1695er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m.
Hér fer á eftir lýsing Sverris Kristjánssonar á þeim íslensku valdsmönnum sem á fyrsta þriðjungi 18. aldar fengu framkvæmdavaldið í hendur.
Með vorskipum, bls. 39: ,,Á þessum árum 18. aldar gengur ekki á öðru en stefnum og gagnstefnum, dómum í héraði, í lögréttu, í yfirrétti og venjulega linnir ekki fyrr en hæstiréttur í Kaupmannahöfn kveður upp úrslitadóminn. Í Danmörku verða Íslendingar á þessum árum ekki frægir fyrir neitt nema málaferli sín og það svo mjög að mörgum háttsettum Dönum blöskrar þessi endalausu réttarhöld og málaflækjur. Gyldenlöve stiftamtmaður hafði miklar áhyggjur af málaþrasi Íslendinga og taldi jafnvel að eyaðst mundi land og þegnar, ef svona héldi áfram. En lögkrókar og lagarefjar voru eins og sýklar í blóði íslenskra höfðingja og valdsmanna, og þeir héldu áfram að sigla Íslandshaf með málskjöl sín og misgilda sjóði ríkisdala til þess að ná rétti sínum á æðsta dómþingi í Kaupmannahöfn".
Nokkrum sinnum enda umsagnir Ísl. æviskráa um Hafnarstúdenta þannig: ,,..stundaði nám í háskólanum í Kh. Drukknaði þar".
Viðauki Fitjaannáls II, 397: ,,Sú ályktun varð í hæstarétti í málum lögmannanna, að Páll var dæmdur í þeim tveimur málum móti Brynjólfi Þórðarsyni og Vigfúsi Hannessyni til að betala hvorum þeirra 100 rd. fyrir málskostnað...hinir aðrir dómar Odds lögmanns og landfógetans Beyers yfir lögmanni Vídalín með hans suspensione frá hans lögmannsembætti...var dæmt ónýtt og að engu haldandi og þar til betala honum málskostnaðinn með 300 rd; samt héldu þeir báðir embættum sínum”.
Jón Aðils: O. Sig. bls. 82: ,,Oddur varð skelkaður er hann spurði komu Páls (til Hafnar)...og fékk geðshræringin svo mikið á hann að hann nóttina eptir þrettánda veitti sér banatilræði og skar sig á háls með rakhníf. Þegar Páli voru færðar fréttirnar sagði hann: ,,Gud bevare hans sjæl fra Helvede”. Lá Oddur alllengi í sárum og greri illa”.
Staddur í Danmörk 1731-1732 lék hann sama leikinn og líklega samtals þrisvar því að eftir Páli Vídalín er haft að Oddur hafi ,,þrisvar gægst inn í helvíti".
(J. Aðils: Oddur Sigurðsson bls. 253, 274).
Það að skaða sig líkamlega til að deyfa andlegan sársauka er nefnt ipsum noce.
Regla var að Íslandsskipin hefðu vistir til 7 vikna.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Í skáldsögunni Hrafnhettu, bls. 109, segir Guðmundur Daníelsson: ,,Fuhrmann, (sem) var skipaður í amtmannsembættið 3. október 1716, ...varð ljóst að hann mundi ekki komast til Íslands á næsta vori. ...Þeir kansellímenn hlóðu að honum slíkum dyngjum af Íslandsreikingum, málsskjölum, bréfum og bænaskrám, sem safnast höfðu fyrir ...vegna linnulausra og óskiljanlegra stórdeilna og málaferla Íslendinga innbyrðis, einkanlega þeirra sem að stjórngæslunni störfuðu".