Endar og byrjar Skúlaskeið
Lag Blessuð sólin elskar allt
Endar og byrjar SkúlaskeiðSkúla ei mótbyr ægirReykjavíkur varðar leiðVöll og Akra plægir.
Heimildir og samhengi
* 12. desember sýslumaður, Innréttingaforstjóri og fógeti Skúli Magnússon; langafi hans í föðurætt og alnafni, Goðdalaprestur, dó daginn eftir. Íslendingabók kveður Skúla eldra hafa verið frægan ræðumann.
Saga frá Skagfirðingum I, 10: ,,við hann er kennt Skúlaskeið á Kaldadal. Þar er sagt að hann hafi hleypt góðhesti sínum og brotið fót hans”.
Síst hefur það dregið úr einurð Skúla yngra að dveljast frá 17 ára aldri - eftir dauða föður síns - að Múla í Aðaldal með fósturföður: prófasti og þreföldum officialis, kunnáttu- þjóðsagnapersónunni Þorleifi Skaftasyni, sjá 1635 (officalis: staðgengill biskups).
Skúli varð sýslumaður í Hegranesþingi 1737og kom þangað frá A-Skaftafellssýslu (sjá 1737).
Saga frá Skagfirðingum I, 73: ,,Skúli var ör af fé og trúlyndur ...oft þótti hann harðtækur, en góður var hann löngum ekkjum og börnum aðstoðarlausum og veitti þeim oft mikla hjálp ...ekki var hann orðsjúkur eða smámunasamur um nokkurn hlut".
Fógeti varð Skúli 1749 - án þess að vita af því fyrr en 1750 - fyrir forgöngu Hofsósskaupmanns sem hugnaðist dirfska sýslumannsins við hollenska leynikaupslagara. En Skúli var jafn við alla og brátt iðraði danska kaupmenn þessa.
Skúli átti stóran þátt í að tvö dönsk verslunarfélög lögðu upp laupana en báðum þótti hann ganga á sinn rétt.
Hitt er jafn satt, að viðhorf íslenskra áhrifamanna voru ekki þau að fólk skyldi sækja vinnu til þéttbýlis við sjávarsíðuna og beitti lögrétta sér og síðar alþingi hið nýja hart gegn slíku a.m.k. frá 1404 og allt til 1893.
Skúli gekk gegn þessum vilja lögréttumanna með því að gangast fyrir Innréttingunum í Reykjavík 1750. Því er hann réttnefndur faðir Reykjavíkur.
Stór stafur í Völl, þ.e., á við Austurvöll, og Skúli bjó sem sýslumaður á Stóru-Ökrum í Skagafirðið 1737-1750.
Ritgerð Ásgeirs Jónssonar segir Skúla í hærri metum með dönskum samtíðarmönnum en löndum sínum og hafa komist upp með ýmislegt sem öðrum ekki leiðst (1743):
SkjalHáskóli Íslands (opnast í nýjum flipa)
Jón Aðils, Einokunarverslun Dana á Íslandi, bls. 523:
,,Skúli beitti stundum hinum mesta þjösnaskap og gjörræði í viðskiptum sínum við kaupmenn".
Mynd Mats Vibe Lund af fæðingarstað Skúla, Keldunesi í Kelduhverfi, N. Þing:
MyndMats Wibe Lund (opnast í nýjum flipa)