Bjarni fékk nemendum Laugarvatns lista/
Lag Komdu og skoðaðu' í kistuna mína
Bjarni fékk nemendum Laugarvatns lista/langaði að vita hvern settu þeir efst/kennari' ei þarf sig við krakkana byrsta/því kaupfélagshugsjón í sál þeirra' er fest/svo fyrir þeim röðunin varla neitt vefst/vita þeir allir að Framsókn er best/Jesús í öðru, en Jónas í fyrsta/og Jón nokkur Sigurðsson reka fékk lest.
Heimildir og samhengi
Eftir að stofnaðir voru Ólafsdals- og Möðruvallaskólar, 1880, byrjuðu hálfrar aldar deilur Sunnlendinga: Fyrst um héraðsskóla eða engan skóla, því að bændur sáu fram á að missa þangað vinnuafl sona sinna. ,,Ekki gætu allir orðið prestar, en annað hefðu menn ekki lært í skóla síðustu 1000 árin”.
Deilan harðnaði enn þegar loks skyldi finna skólanum stað. Fyrst rígur milli sýslna og síðan hrepparígur innan Árnessýslu.
Á hnútinn hjó rh. Jónas Jónsson frá Hriflu. Hann ákvað Laugarvatn 1928 þótt afskekkt væri og varð hinn mikli Laugarvatnsskóli eftrirlætisverkefni hans - svo notuð séu orð Guðjóns Friðrikssonar í Samvinnu á Suðurlandi III,26.
Skólastjórinn, Bjarni Bjarnason (1889-1970) var mikill stuðningsmaður Jónasar og fór slíkt Framsóknarorð af Laugarvatni þá, að Sjálfstæðiskaupmaðurinn Sigurbjörn Þorkelsson (1885-1981) í Vísi á Laugavegi 1 lét vefja sig inn í teppi þegar hann var farþegi í bíl sem ók þar um hlöð. (Sigurbjörn Þorkelsson: Himneskt er að lifa IV, bls. 13).
HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Pólitík hafði hlaupið í menntaskólamálin - hvort útskrifa skyldi stúdenta annars staðar frá en Reykjavík – pólitíkusar fengu m.a.s. andstæðinga Jónasar nyrðra til að andmæla menntadeild þar á Akureyri.
Allt þetta gæti hafa haft áhrif á niðurstöðu skoðanakönnunar Bjarna um hvert væri mesta mikilmenni mannkynssögunnar.
Jónas var brennidepill deilna bæði milli flokka og innan eigin flokks.
,,Ástandið var orðið þannig (~1930-1934), að við (Sjálfstæðismenn) vorum á móti öllu því sem Jónas vildi", hefur Guðjón Friðriksson eftir stjórnarmanni Varðar á bls. 276 í Sögu Reykjavíkur, Bærinn vaknar II.
Menntaskóli var stofnaður á Laugarvatni 1953.
Aðrar heimildir:
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
Jón Hjaltason, Saga Akureyrar IV, bls. 58.
Vefuratthagafraedi.blaskogaskoli.is (opnast í nýjum flipa)