Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1639
1639
1639

Hið háa alþing út gaf lista

Hljóðbrot0:00

Lag (Ég hef svo margan morgun vaknað) SSB 81

HHið háa alþing út gaf listasem almenningi hefur birst:,,Afgreiða kaupmenn eiga fyrsta:alþingis-, lögréttu'- og sýslumenn,- bændurnir geta beðið yst -en biskup og hirðstjóra allra fyrst”.

Glúmur Gylfason · 1639

Heimildir og samhengi

Lögrétta ályktar um í hvaða röð kaupmenn skuli afgreiða viðskiptavini og gerir fyllri samþykkt sína frá fyrra ári.
Alþingisbók 1639, bls. 597, nr. XXVIII: ,,...eptir þeim dómi sem í fyrra gekk um varningskaup, að lögréttumenn, svo sem prestar, skyldi næst yfirvaldsmönnum (lögmönnum, biskupum) kaup fá af kaupmönnum".
Alþingisbók 1638, bls. 541, nr. XIV: ,,...að þeir ekki seldi lausamönnum sína vöru, fyrr en bændur hefði undan gengið með sinn kaupskap".
Þ.e.: 1. valdsmenn, 2. lögréttumenn, 3. bændur, 4. lausamenn.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Vigfús Guðmundsson lýsir aðstæðum við skipakomur í Sögu Eyrarbakka, bls. 587: ,,Hvort sem heldur var á skipum á floti eða í grjóti og torfhlöðnum búðum hlaut afgreiðslan að vera seinvirk. Sérstaklega að sýna smávarning og rekja upp álnavöru úr kistum þeim er nota varð bæði í sjóvolkinu og svo við afgreiðsluna. Höfðingjar og ríkisbændur hafa keypt í slumpum á langar lestir. En kotungar og búðsetumenn hafa tæplega komist að, því að þá var ekki hægt um vik að vega fáein pund af mjöli og gutla við að mæla fáa potta af öli eða fáar álnir af lérefti".
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Á tíma þjóðernisbaráttunnar á síðustu áratugum 19. aldar og fram á þá 20. sáu margir þessa viðskiptahætti í rómantískum ljóma fornaldar, stofnuðu kaup- og pöntunarfélög án sölubúðar og sögðu verslunarstéttina óþarfa. (1923). Vigfús Guðmundsson segir manngreinarálit við afgreiðsluröð fyrst hverfa í Eyrarbakkaverslun við komu Guðmundar Thorgrímsen 1847. (1886).
Þetta staðfestir frásögn Odds Oddssonar í Sagnir og þjóðhættir, bls. 75: ,,...urðu menn ...að flytja (ullar)pokana ...eftir röð inn að vigtinni, ...en eftir þessari röð var ófrávíkjanlega vigtað, hvort sem í hlut áttu ríkir eða fátækir".

Myndildiariosegretodicupido.altervista.org (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Þeir almúgamenn sem skiluðu svörum til Landsnefndarinnar fyrri, 1770-72, kvörtuðu undan því að þegar loks kæmi röðin að þeim hjá kaupmanninum þá hefðu heldrimennin þegar haft á braut allar vörur sem sem til einhvers væru nýtar. (Harald Gustafsson, Mellan kung och almuge, 127).

Stéttaskiptingu að hætti ásatrúar skýrir Rígsþula í Eddukvæðum.

Myndir

← 1638Brugðið er til betri áttar1640 →Tveggja ára Guð er gjafi