Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1632
1632
1632

Vel notar Gísli vígsluferð

Hljóðbrot0:00

Lag Dvel ég í draumahöll

VVel notar Gísli vígsluferðvíkst ei frá né rennursemur enn um sama verðsýnir vit og tennur.Að látnir verði lausir senn- þótt lífið sjálft sé veðið -herteknum senda múgamennminna en um var beðið.

Biskupsson til biskups fábetur þótti hentaBrynjólfur Hallgrím í Höfn þá sáog honum kom til mennta.

Glúmur Gylfason · 1632

Heimildir og samhengi

Hstj. Holger Rosenkrantz vildi/þorði ekki að fara fram á að hætt yrði við að láta erlendar verðhækkanir hafa áhrif á kaupsetningu hér svo sem kaupmenn kröfðust, en það gerði Gísli sterki Oddsson við kóng í biskupsvígsluför sinni og náði þar þeim árangri sem Páll Eggert Ólason kallar ,,afrek í verslunarmálum landsins" í Sögu Íslendinga V, 330. Sýnir dæmi á bls. 412-413 að mjöltunna sem skv. ísl. kaupsetningu skyldi seld frá 2 rd. 28 sk. til 4 rd. 12 sk. eftir gjaldvöru, var í Danmörk 1630 komin í 7 rd. 68 sk. en hafði í innkaupi 1620 verið á 2 rd. 28 sk.
(J.S. 510, fol. p. 107; Saga Eyrarbakka, V.G., 573).

Gísli sonur Odds biskups ,,kraftamaður hinn mesti", (Mbl. 2/7 2018), bar hellu umhverfis Skálholtskirkju sem sterkir menn rétt náðu að færa á kné sér. Prestar völdu hann (þess vegna?) til biskups 1632, en höfnuðu Brynjólfi Sveinssyni. Þetta biskupsval hefur valdið heilabrotum. En framganga Gísla ytra í kaupsetningarmálinu gefur ekki ástæðu til eftirsjár.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Sjö biskupsárin Gísla var hallæri mikið, gæftaleysi og óáran.
Arfur frá faríseum Gyðinga var að óáran fylgdi illu framferði þjóðar. Þetta rekur guðfræðipróf. Jón Magnússon (1887-1958) og rh. (D) í bók sinni, Páll postuli, bls. 28: ,,Hverri synd fylgdi ákveðin plága: Tíundarsvikum fylgdi hungursneyð, dauðasyndum, sem ekki kom refsing fyrir, fylgdi drepsótt, illu réttarfari fylgdu árásir erlendra þjóða".
Gísli skrifaði stiftinu harðort hirðisbréf og kenndi óguðlegu líferni landsmanna um ótíðina. Bréfið er birt í Öldinni sautjándu, bls. 82. Gísli lést 1638 og varð Brynjólfur Skálholtsbiskup 1639.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Fitjaannáll II, 123: ,,Sendir peningar fram eptir kongsbréfi, sem almúginn lagði herteknum íslenskum til lausnar”. Hér er átt við ,,Tyrkjaránið" 1627.

20. júní 1627 komu alsírsku víkingaskipin til Íslands, en þeim er talin hafa borist njósn af því að dönsku herskipin voru í Eystrasalti vegna 30 ára stríðsins enda Kristján IV. ekki vanur að standa á hliðarlínunni ef stríð var í boði.
Hvað ef engin dönsk herskip hefðu verið á sveimi hin árin?

Seint hafði innheimst skattur þessi enda Vestmannaeyingar sjálfir taldir hafa kallað Tyrkjaránið yfir sig með óguðlegu líferni. En siðferði í verstöðvum þótti lengi misjafnt - sjá t.d. ummæli alþingismanna við 1887. Hús- og lausamennska við sjóinn var bændum ætíð þyrnir í augum. Þeir þurftu á vinnukrafti að halda.

25 þúsund kristnir evrópskir þrælar voru í Alsír, þar af 3.000 enskir.

Kristjáni IV. gekk illa að ná inn fjögur þúsund kýrverðum til að leysa þegna sína úr þrældómi í Alsír – e.t.v. verst frá Íslandi – höfðaði kóngur mjög til auðmanna um framlög.

1629, var innrás Tyrkja í evrópu hrundið er þeir voru komnir að borgarmúrum Vínar.
1683 tókst það á sama stað á ögurstundu og réði þá úrslitum að pólskt herlið kom Vínarbúum til bjargar og forðaði það evrópu frá islam í það skiptið.

Tilvísun: Sverrir Kristjánsson, Sv. Kr. Ritsafn 1.

Fleira leiddi af þegar Gísli hlaut biskjupskjör en Brynjólfur ekki:

Íslenskar æviskrár ll, 287: ,,Ólst (Hallgrímur, bróðursonur Brynjólfs Sveinssonar) upp á Hólum, komst í skólann þar, en þókti óstýrilátur, var látinn fara utan til að nema iðn nokkura, fyrst til Glückstadt, en í Kh. kynntist Brynjólfur - síðar biskup Sveinsson - honum, og var hann þá hjá járnsmiði eða kolakaupmanni; hefir þetta verið eftir komu Brynjólfs til Kh. Í annað sinn (haustið 1632) kom hann honum í Maríuskóla (Frúarskóla í Kh.)."

Myndir

← 1631Æðri stéttar illur þjón1633 →Ekki mátti minna nægja