Við biskupsgröf tók Gísli sótt
Lag Ef að mér til ununar - Bj.Þ. 828
Við biskupsgröf tók Gísli sóttgigt ei réð hann beygjamæða þung og mein hve fljóttþeir margir frændur deyja.
Heimildir og samhengi
Lm. Gísli Hákonarson í Bræðratungu (1583 – 10. febrúar 1631) tók banasótt við útför Odds. (Sjá 1630). Þeir nágrannar og forystumenn, annar leikra, hinn lærðra. Hafði það sín áhrif á samkomulagið ,,og erfðist óvildin til sonanna, sm. Vigfúsar á Stórólfshvoli og lm. Árna á Leirá" - segir Jón Aðils á bls. 7 í riti sínu um Odd Sigurðsson lögmann.
2. vísuorð gerir ekki ráð fyrir að aldurstengdir sjúkdómar hafi náð að hrella Gísla.
Skv. Ísl. æviskrám: Hákon faðir Gísla lm. varð ekki gamall, Bjarni klausturhaldari, bróðir Gísla, varð og skammlífur. Sonur lm. Gísla, Hákon sm. Bræðratungu, náði 38 ára aldri og Vigfús hans sonur dó 23ja ára. Aðra tvo syni átti lm. Gísli: Þórð, sem dó á námsárum í Kh. og Vigfús sm. Stórólfshvoli, sem lést 39 ára.