Nótt hans komin ágæt, Ein-
Lag Hjá stallinum Kristí
Nótt hans komin ágæt, Ein-ars í Heydal - ljósið skein -ugglaus gerist brautin beinog breið í himnaríki.Hans vísnasöngþeim vængjuðu trúi' að líki.
Heimildir og samhengi
+ Einar skáld Sigurðsson (1538-1626), pr. Heydölum, sem orti Kvæði af stallinum Kristí:
,,Nóttin var sú ágæt ein,
í allri veröld ljósið skein ..."
Einar dó sama ár og Péturskirkjan í Vatikaninu er vígð.
Hafði hún verið 120 ár í smíðum. Í Vatikaninu er meðfylgjandi englamynd eftir Rafael frá því sama ári.
Minnismerki um skáldið séra Einar Sigurðsson er við kirkjuna í Heydölum.
Slóðir:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
VefurFacebook (opnast í nýjum flipa)
Á bls. 44 í Breiðabólstaðarbók sinni segir Vigfús Guðmundsson frá Keldum að Einar hafi sennilega verið prestur lengst allra, 69 ár, þ.e., vígður 19 ára. Við siðbreytinguna varð prestaskortur til þess að ekki var haldið reglunni um 25 ára lágmarksaldur til prestvígslu.
Þegar sonur Einars, Oddur, varð biskup í Skálholti tók hann föður sinn þangað til sín um haustið 1589við sextánda mann og veitti honum Hvamm í Norðurárdal að vori og gerði samstundis að prófasti þar, en Heydali ári síðar.
Á bls. 15 í ævisögu Helgu Sörensdóttur nefnir Jón Sigurðsson frá Ystafelli þá sögn, að allir Íslendingar geti rakið ætt sína til sr. Einars Sigurðssonar.