Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1612
1612
1612

Þórdís að Vallalaugu ló

Hljóðbrot0:00

Lag Í friði látinn hvíli hér - SB 275

ÞÞórdís að Vallalaugu lóaf landi burtu Tómas fló.Kvæði Jóns lærða til dauða dródraug sem á Snæfjallaströndu bjó.

Glúmur Gylfason · 1612

Heimildir og samhengi

Seyluþing að Vallalaugu í Skagafirði;

Þórdís Halldórsdóttir, Sólheimum í Sæmundarhlíð, vissi engan föður að barni sínu, er fæddist 1608. Henni drekkt 1618.
Tómas Böðvarsson b. Sólh., mágur Þórdísar og ætlaður faðir, komst á hestbak og reið af sér alla Skagfirðinga í gjörningaþoku og komst svo til skips! Faðir hans, séra Böðvar Jónsson, var orðinn prestur á Myrká í kaþólsku 1547 og endursettur lútherskur prestur í það embætti af biskupi Ólafi Hjaltasyni 1567.
Eiginkona Tómasar, alsystir Þórdísar, hét Bergljót.
Þórdís vann þann eið1608, að væri frí af öllum karlmönnum.
4 mánuðum síðar ól hún barn.

Eiðstafurinn: ,,...fri att verre for naturlig Omgengelse til barns Vndfangelse for alle mandspersoner, leffendis och döde".
H. Daa lét pína hana með fingurklemmu og lýsti hún þá Tómas föður en dró síðar til baka, sem ekki dugði. Var henni þá drekkt, en barnið þá 10 ára gamalt.

Þessi píningaraðferð H. Daa er það eina sem finnst á þann ræmda mann annað en skuld við kóng (sjá 1618), en í Danmörk sem og í Grágás var leyft að pína konur til sagna í faðernismálum, sjá Heimtur bls. 201, Afmælisrit Gunnars Karlssonar sjötugum, grein Helga Skúla Kjartanssonar.

Langamma Þórdísar og þeirra systra í beinan kvenlegg var Ragnheiður á rauðum sokkum, kona Jóns ríka Magnússonar á Svalbarði í Eyjafirði. Við þau kennd Svalbarðsættin, sbr. m.a. synina: lm. Jón á Vindheimum, Staðarhóls-Pál og Magnús prúða. (1558, 1563, 1577, 1606).

Annálar 1, 200: ,,Bóndi í Sólheimum í Sæmundarhlíð. Strauk til Englands 1612, því hann átti barn með systur konu sinnar. Hans kvinna Bergljót giptist aptur á Vestfjörðum.
Kom Tómas og vildi sækja hana, hún vildi ekki með honum fara“.

Orðskýring: ló = laug, þt. af ljúga.
Heimildir og tilvísanir:
Íslendingabók; Bólu-Hjálmarssaga Brynjólfs frá Stóra-Núpi, bls. 115;
Már Jónsson, Blóðskömm bls. 167;

Guðbrandur Jónsson: 7 dauðasyndir;
Einar Arnórsson: Saga 1, 26; Sigurður Ólason, Yfir aldahaf, 60;
Benedikt Gíslason frá Hofteigi, Fólk og saga.

Með Fjandafælu 1611:
- (Jesú dreyra dauða og pín / sem dragi oss æ frá grandi / set eg á milli mín og þín / myrkra sterkur andi.)

og Snjáfjallavísum 1612:
(...ramma, skammar, rómgrimm / rjúki, strjúki, svo fjúki / í grunnið renni greyið senn / gleypist, sneypist og steypist.) -
kvað Jón lærði Guðmundsson (1574-1658) niður Snjáfjalladrauginn, sem var séra Jón Þorleifsson, Stað, Snæfjallaströnd, sem hrapaði til bana og gekk aftur. Þetta varð Ara í Ögri tilefni til þess að fá Jón lærða dæmdan útlægan fyrir hvítagaldur, en Jón hafði gagnrýnt Ara fyrir Baskavígin 1615. (1611,1631). Dómurinn stóðst ekki af því að tilskipun kóngs um hvítagaldur var aldrei lesin upp í lögréttu enda héldu Íslendingar áfram að kveða niður drauga til miðrar 19. aldar - Níels skáldi kvað þá niður Skinnpilsu og Móbergsmóra og þótti vel takast.
Sjá og 1631.
Heimildir: Íslenskar æviskrár og Óskar Halldórsson, Bókmenntir á lærdómsöld, bls. 62.

Helgi Hannesson, Þykkskinna, bls. 44/45: ,,Frá ómunatíð var tilvera drauga talin óyggjandi. Nú halda margir þá hugarburð einn. ...Íslenskir draugar voru ...útlagasveit í sífelldu stríði við sambýlisfólk sitt í landinu. ...Óttinn við drauga er orðinn lítill enda fækkar þeim óðum. Vera kann að þeir verði aldauða bráðum".

AlfræðiVísindavefurinn (opnast í nýjum flipa)

VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)

AlfræðiVísindavefurinn (opnast í nýjum flipa)

HeimildForlagið (opnast í nýjum flipa)

VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Vefursnerpa.is (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)


Myndir

← 1611Vestan úr Gandvík verður sagt1613 →Kóngurinn í snúning snar