Núna getur Gutti rótt
Lag Eg eri Jólamaðurin - H.J. Höjgaard
Núna getur Gutti róttGuðs sig falið valdiþví lögmanns Jóns var sálin sóttsofnaði burt í tjaldi.
Eigi brast þá Gutti í grátglasi lyft og hlakkaðþeim boð er flutti um lögmanns látlét með gulli þakkað.
Heimildir og samhengi
Jón lm. NV Jónsson, f. 1536, vaknaði ekki aftur í tjaldi sínu á Bessastöðum morguninn eftir veislu hjá nýjum hm., Herluf Daa. Vel átti að hafa farið á með þeim og taldi Jón sig hafa í H. Daa fengið góðan liðsmann gegn óvini sínum, Guðbrandi Hólabiskupi. Síðustu orð hans áður sofnaði sögð vera: ,,Nú skal Gutti setja ofan”, en viðbrögð Guðbrands við dánarfregninni þau, að gefa boðberanum 4 spesíur.
Ein spesía valt á 2-3 rd. en kýrverð ~4 rd.
Lm. Jón hafði verið öflugasti andstæðingur biskups í harðvítugum deilum sem héldu fram til 1620. Inn í valdatafl blönduðust erfðakröfur sem Guðbrandur hóf eftir að hjónaband móðurafa hans og ömmu frá 1497 var dæmt löglegt í nýjum sið. Þann dóm kvað upp sá skrautlegi Ormur Sturluson í síðustu lögmannstíð sinni með fulltingi höfuðsmanns á meðan vinur Guðbrands og Orms, Friðrik II., enn sat á stóli.
Biskuparnir kaþólsku, Jón Arason og Gottskálk Nikulásson, sem Guðbrandur gaf nafnið grimmi, fundu á sínum tíma fjórmenningsmeinbug á hjónabandi þeirra Jóns Sigmundssonar og Bjargar Þorvaldsdóttur og tóku þá eignir hjónanna undir Hólastól.
F.h. Stólsins afhenti nú biskup Guðbrandur sjálfum sér og sínum ættingjum 10 af þeim 20 jörðum sem krafist var. Aðrar höfu verið (marg)seldar og því erfitt við að fást og átti Jón lm. Jónsson með tvær að gera. En þegar aðrir gerðu sömu kröfur á Hólastól á sömu forsendum, þá varði Guðbrandur hagsmuni Stólsins með kjafti og klóm og neitaði öllum öðrum kröfum en sínum eigin.
Um eðli deilna biskups og lögmanna skal vitnað í dr. Má Jónsson, Blóðskömm á Íslandi, 121: ,,Kirkjunnar menn jafnt sem veraldlegir ráðamenn kepptu um hylli konungs í því skyni að ráða sem mestu í landinu. Ekki var hikað við að rægja andstæðinga og freista þess að koma fram breytingum þeim í óhag”.
Heimild úr Sögu Íslands VI, 178 og sjá aths. við 1561 og 1911.
Skyndilegur dauði lm. Jóns í návist þess rægða Herlufs Daa (1618) hlaut að þykja grunsamlegur og heppilegur til að gera Íslandssöguna spennandi. Tók undirritaður sem barnakennari fullan þátt í þeim leik á sínum tíma, sbr. erindi dr. Láru Magnúsardóttur við HÍ 2/12 2014: ,,...á þeim árum var ætlast til að sagnfræðingar og kennarar tækju þátt í sjálfstæðisbaráttunni með því að tala illa um Dani”.
Síðustu hálfa öld hefur þó kveðið við annan tón hjá sagnfræðingum, og eru óhressir með hve tregðulögmálið er sterkt.
Skýringin þess kann að vera sú, að kennarar á lægri stigum kenna eins og þeim var kennt af kennurum sem lært höfðu af bókum og kennurum hinna fyrri skylduviðhorfa.
Utanríkispólitík er sjaldnast hlutlaus og raunsæ.