Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 16. öld
  3. 1584
1584
1584

Stendur vel þess bónda bú

Hljóðbrot0:00

Lag Kálfar tveir í kúamynd

SStendur vel þess bónda bú- bendi´ á það og meina -bók sem falar fyrir kúog frekar þrjár en eina.

Glúmur Gylfason · 1584

Heimildir og samhengi

Á árunum 1582-5 lætur Guðbrandur biskup Þorláksson (~1542-1627) Jón prentara Jónsson hins sænska prests og prentara Matthíassonar, prenta Guðbrandsbiblíu á Hólum og fær þýskan bókbindara, Jurin, til að binda og kenna bókband. Skar Guðbrandur sjálfur út upphafsstafi og myndskreytingar – lýsti bókina, sem kallað var.
Þrátt fyrir 200 rd. stuðning kóngs var biblían seld á 8 rd. en 12 rd. í betra bandi.
Kýrverð þá um 4 rd. Sjá1585.

Biblía Marteins Lúthers á þýsku 1534.
Ensk biblíuþýðing 1535. King James bible 1611
Sænsk biblía, kennd við Gustaf Vasa 1541.
Dönsk biblía, kennd við Kristján III. 1550.
Norsk biblia útg.1904, sjá þar.
Færeysk biblía: 1949 / 1961.

Um aldamótin 400 lauk san Girolamo (347-420) biblíuþýðingu á latínu, úr grísku og hebresku og nefndi Vulgata, þ.e. Biblía fólksins (volco: fólk), en málið skyldi vera við alþýðu hæfi. Þetta var Biblía kirkjunnar fram að siðbreytingu og lengur.

Karl Sigurbjörnsson: Í helgum steini, bls. 193: ,,Biblían hefur átt samleið með okkar þjóð í þúsund ár. Sagan sem Biblían segir hefur verið hluti af sögu og lífi þjóðarinnar ...mótað menningu, list og ljóð, réttarfar og siðgæði til ómældrar blessunar. ...Samt er Biblían tvíeggjuð, hún hefur iðulega verið misnotuð sem lögbók og refsivöndur. ...En þrátt fyrir slíka misnotkun í sögu og samtíð þá verða áhrif Biblíunnar til góðs seint ofmetin".

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Tilvísun á heimildir:
Grein á Wikipedia um GuðbrandsbiblíuWikipedia (opnast í nýjum flipa)

Vefurprentsogusetur.is (opnast í nýjum flipa)

Myndir

← 1583Þörf er það á benda:1585 →Við bókband jafnframt Júrín má