Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 16. öld
  3. 1581
1581
1581

Erfðadeilur, öfund megn

Hljóðbrot0:00

Lag Fyrr var oft í Koti kátt

EErfðadeilur, öfund megnefling standa' í vegiatkvæði þingið greiðir gegnað Guðbrandur versla megiöllu skiptir ekki verðer menn gerast kargirþá skipið týndist fyrstu´í ferðfegnir urðu margir.

Glúmur Gylfason · 1581

Heimildir og samhengi

Guðbrandi Hólabiskupi Þorlákssyni (~1542-1627) veitti kóngur, Friðrik II., verslunarleyfi á Hofsósi gegn vilja lögréttu og beggja lögmanna, Jóns Jónssonar og Þórðar Guðmundssonar, sem voru vinir og þar með óvinir Guðbrands, sem átti sínar skýringar. (1593, 1620). Þeir rituðu kóngi og töldu ,,áhættusamt og óþarft að landsmenn sjálfir versli”. Lögrétta hrósaði þó sigri að lokum - hafði á réttu að standa um áhættuna - því að skipið fórst með manni og mús í fyrstu ferð 1581. (1604, 1776).

Þorvaldur Thoroddsen í Ævisögu Pjeturs biskups Pjeturssonar, bls. 81:
,,Guðbrandur Þorláksson vildi sem kunnugt er rýmka um verslunarfrelsi á Íslandi og vildi að almenningur eignaðist verslunarskip og stofnaði verslunarfélög, en Jón Jónsson lögmaður og lögréttan lögðust á móti og sendu konungi bænaskrá um að afstýra slíkri óhæfu... með þessu sýndu Íslendingar velþóknun sína á einokunarversluninni sem litlu síðar var innleidd. Þetta er einn með svörtustu blettum í sögu Íslands".
Þeir sem leita að öðrum svörtum blettum geta slegið hér inn t.d. ártölunum 1701 og 1702.
Á bls. 18 í bókinni Bauka-Jón fjallar Jón Þ. Þór um laun- og okurverslun Íslendinga á fyrri öldum.

Skýring á hegðun lögréttumanna gæti legið í eftirfarandi:
Gísli Gunnarsson, Líftaug landsins, bls. 283; ,,Allt bendir til að fyrir daga einokunarverslunar hafi flestir almúgamenn ekki haft rétt til að versla beint við kaupmenn heldur hafi höfðingjar/landeigendur oft eða oftast haft einir þennan rétt og selt síðan landsetum sínum erlendar vörur á uppsprengdu verði".

Sjálfsævisaga Jakobs Hálfdanarsonar, bls. 90: ,,Þegar alþing hið nýja kom fyrst saman 1845, höfðu nokkrir af landsmönnum þá hugsjón um viðskiptaþörf sína að óska eftir að konungur lofaði fleiri þjóðum en Dönum einum að skipta við landsbúa, en ekki varð það þó í fyrstu einu sinni helmingur þingmanna sem gaf atkvæði sitt með þessu nýmæli. Svona var mönnum orðið okið inndælt og byrðin létt".

FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)

FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Vefurekstrabladet.dk (opnast í nýjum flipa)

Myndir

← 1580Byssur fengu sýslur sex1582 →Gregor úthrópar annað rím