Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 16. öld
  3. 1578
1578
1578

Jafnt þó prentaði Jóns-lögbók

Hljóðbrot0:00

Lag Heimsins þegar hjaðnar rós - Bj.Þ. 914

JJafnt þó prentaði Jóns-lögbókjöfur HólaSigurðar- ekki soninn tóksamt í skóla.

Glúmur Gylfason · 1578

Heimildir og samhengi

Jónsbók 1. prentun á Hólum. Forlag: lm. Jón Jónsson (1536-1606), Vindheima-Jón, bjó um tíma á Vindheimum á Þelamörk í Eyjafirði. Hann var sonur lrm. Jóns Magnússonar, Svalbarði Ef. og Ragnheiðar á rauðum sokkum Pétursdóttur.
Lm. Jón kostaði prentun lögbókarinnar. Hann hélt samtímis lögmannsdæminu: tvö klausturumboð, þrjár sýslur og var umboðsmaður konungsjarða í Miðfirði og Vatnsdal. Kom ekki upp börnum og erfði því fyrri konu sína og að honum látnum urðu eignirnar að engu (skv. Ísl. æviskrám) þegar síðari kona hans, ekkjan Guðrún Einarsdóttir, sonardóttir Marteins biskups, giftist drykkjusjúklingi, Steindóri Gíslasyni lögmanns, Þórðarsonar lögmanns Guðmundssonar. Þessar eignir eru tíundaðar í Sögu Íslendinga V, bls. 242: 5 1/2 (stórt) hundrað hundraða í jörðum en lausafé þó enn meira, þar af kvensilfur ~60 kg sem jafngildir um 480 kýrverðum. Nokkur hefur þorsti Steindórs verið.

Þótt saman drægi með þeim Guðbrandi, jöfri Hóla, árin1577-8 þá stóð það ekki tvö heil ár, en síðustu orð lm. Jóns lifa: ,,Nú skal Gutti setja ofan”. Þau voru sögð eftir að Jón sat veislu nýs höfuðsmanns, Herlufs Daa, á Bessastöðum 1606 og hugðist nýta vinfengi við hann til þess að ná sér niðri á Guðbrandi.
Lm. Jón vaknaði ekki að morgni.

Sá, er ekki fékk skólavist á Hólum, var Jón, síðar lm., sonur Sigurðar bróður Jóns lögmanns. Taldi Guðbrandur ýmsar ávirðingar Sigurðar til, sbr. 1577.

Lögbókin, Jónsbók, samþykkt á þingi 1281, dregur nafn af séra Jóni gelgju Einarssyni í Hruna, sem þá kom með lögin frá Noregi ásamt Loðni lepp, sem sagði búkarla gera sig breiða, þegar Íslendingar fundu að ýmsu, m.a. sögðu bændur að skussar skyldu ekki treysta á forsjála þegar lögin gerðu ráð fyrir, heymiðlun á harðindavorum.

Myndir

← 1577Vindheima-Jón ei að litlu laut1579 →Kóngur þarfar bjargir bringar