Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 16. öld
  3. 1576
1576
1576

Hafið sögu heyrt þá, ljóta,

Hljóðbrot0:00

Lag Guttavísur

HHafið sögu heyrt þá, ljóta,hér um landið sem að fer?heldri upp til handa og fótahrópa og barma sér:biskupinn er orðinn brjálaðurbetra þætti ef fyrir löngu værisálaðurleika þykir ei á tungum tveimað trúnni stafi hætta mikil afþeim orðasveimað h'ann hyggist versla viljavörur selja og græða á þeim,nei, gott er ekki Guðbrand skilja,Gutti, farðu heim!

Glúmur Gylfason · 1576

Heimildir og samhengi

Guðbrandur biskup sækir um verslunarleyfi og fær, þrátt fyrir öflug mótmæli íslenskrar yfirstéttar, lögréttu, sem taldi ófært að Íslendingur stæði í verslun – það hefðu útlendingar alltaf séð um. Svalberðingar, synir Jóns Magnússonar, lrm. þar, fengu þó andað léttar því að skip Guðbrands fórst á útleið í fyrstu ferð, 1581.
Jón Jónsson, lm. Vindheimum á Þelamörk, Ef., og víðar, Svalberðingur, nefndi Guðbrand ,,Gutta” við komu hstj. Herlufs Daa 1606 sem frægt varð: ,,Nú skal Gutti setja ofan”. Um orsakir að deilum Jóns og Guðbrands segir Jón Espólín: ,,...báðir voru stórlyndir, biskup féglöggur og keppinn, en lögmaður ágengur, uppvöðslumikill og undirförull í senn".

Þorvaldur Thoroddsen, Ævisaga Pjeturs biskups Pjeturssonar, bls. 81:
,,Guðbrandur Þorláksson vildi sem kunnugt er rýmka um versunarfrelsi á Íslandi og vildi að almenningur eignaðist verslunarskip og stofnaði verslunarfélög, en Jón Jónsson lögmaður og lögréttan lögðust á móti og sendu konungi bænaskrá um að afstýra slíkri óhæfu... með þessu sýndu Íslendingar velþóknun sína á einokunarversluninni sem litlu síðar var innleidd. Þetta er einn með svörtustu blettum í sögu Íslands." (1602, 1604).

Síðan Þorvaldur ritaði þetta hafa verslunarmál þessa tíma verið rannsökuð, t.d. af Gísla Gunnarssyni, ,,Upp er boðið Ísaland", sjá 1581. Sést þá að afstöðu lm. Jóns og félaga má e.t.v. rekja til þess, sem hér er sagt við 1658, að auðugir keyptu vörur í e.k. heildsölu, hundraðskaupi", og seldu síðan í smásölu með álagningu.
Gísli Konráðsson ritar við árið 1776 í Sögu Skagstrendinga og Skagamanna, bls. 49:
,,Nær 20 manns lágu þá eftir í Höfða, þótti það fáheyrt. Það var Diðrik Hölter kaupmaður (og hyski hans).
Hafði kaupmaður síst að selja það er menn girntust, svo sem tóbak ...tóbakssala og brennivíns var sem fyrri íslenskra á milli. ...Tóbak var þá selt í Höfða 4 skildingum dýrara hvert pund en verðlagsskráin bauð. ...1779 tóbakspundið enn hækkað um 4 skildinga".

Á bls. 18 bókinni Bauka-Jón fjallar Jón Þ. Þór um laun- og okurverslun Íslendinga á fyrri öldum.

Myndir

Einnig frá árinu 1576

  • Oddaverjar virða og dá
← 1575,,Best sé hafa bændur sátta"1576 →Oddaverjar virða og dá