Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 16. öld
  3. 1574
1574
1574

Kóngur vill Alþing í Kópavog

Hljóðbrot0:00

Lag Fyrr var oft í Koti kátt

KKóngur vill Alþing í Kópavogog kirkjutíund snarabiskupar játa ekki ogengu kjósa að svaravilja ekki tefla á togtíminn vinni baraog Kópa- telja víst í vogvilji enginn fara.

Glúmur Gylfason · 1574

Heimildir og samhengi

Til þess að auðvelda hirðstjórum ferðalög frá Bessastöðum lýsir kóngur vilja sínum til að flytja alþingi í Kópavog enda sé þingstaðurinn ,,ubeleylig" fyrir marga. Alþingisbók, 266.

Friðrik II. óskaði þess sama 1563 enda ,,hólmurinn, þar sem þinghaldið fer fram, af vatni forgenginn”, en leggur þó engan stað til. (Ísl. fornbréfasafn, 64).

,,Ólíkt því sem gerðist í Danmörku voru jarðeignir biskupsstólanna ekki lagðar undir konung enda voru biskuparnir ekki settir á föst laun, heldur var sem verið hafði, þ.e., biskupsstóllinn fékk tekjur af þeim jörðum, tíund og ýmsum embættisverkum." (Árni Daníel Júlíusson - Jón Ólafur Ísberg: ,,Aldir bændasamfélagsins", bls. 50).

Sú er önnur ósk kóngs, að fátækratíund verði goldin af kirkju- og konungsjörðum, en þær voru ekki tíundarskyldar, en biskupar hunsa og svara engu.
Lögrétta samþykkti þetta, en ,,á ýmsu valt um frmkvæmdina", segir Einar Laxness í Íslands sögu undir leitarorðinu tíund.
Sjá 1619, þegar kóngur fékk það ekki fram (1609 og 1619) vegna andstöðu lögréttu, að jarðeigendur greiddu tíundina en ekki leiguliðar.
Sbr. Sögu Íslands, 106-107.

Tíund var upphaflega samþykkt á þingi 1096 og var 1% af arbærri eign. Skiptist tiundin í 4 staði: presta-, biskups-, kirku- og fátækratíund.
Eftir síðari pláguna, 1494-1496, tóku jarðeigendur að velta tíundargreiðslum yfir á leiguliða.

Einar Laxness, Íslands saga III, 92: ,,Skv. bréfi 1556...tók konungur til sín meginhluta biskupstíundar ...rann hún til sýslumanna”.

Guðrún Ása Grímsdóttir í Sögu Biskupsstólanna, bls, 147: ,,Biskupstíundir voru einu laun biskups sjálfs, en hann gat bætt sér upp illar heimtur með leigugjöldum af eigin jarðeignum og fylgjandi kvikfé".
Sbr. bls. 146: Eftir siðaskipti hafði kóngur tekið biskupstíundir til sín, en eftir kvörtun presta 1557 skilað aftur tíundum úr fjórum sýslum.
Bls. 150: ... ,,hann (innheimtumaður biskups) skal af öllum tíundunum þriðjung hafa og helming af öllum álögum". Úr bréfi Brynjólfs biskups til Jóns Jónssonar á Hömrum.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

← 1573Vísir þóttust vita þá1575 →,,Best sé hafa bændur sátta"