Biskupi bænir lesi
Lag Um dauðans óvissan tíma (Allt eins og blómstrið eina)
Biskupi bænir lesibúendur hér um Frónkrossinn úr Kaldaðarnesikurlaði Gísli í spón.,,Hryggileg hrösun hentiheilagan drottins þjón”annállinn á það bentiað upp þá tókum prjón.
Heimildir og samhengi
Krossinn í Kaldaðarnesi þótti helgasti gripur landsins í kaþólsku. Gissur Einarsson tók hann niður 1547, sjá þar.
Einhver kom honum á sinn stað að nýju og ekki linnti trúnni á kraftaverkamátt hans. Nú tók Skálholtsbiskup, Gísli Jónsson, sig til og flutti krossinn til Skálholts og lét höggva sundur og brenna. Var illa þokkað.
Myndi0.wp.com (opnast í nýjum flipa)
Heimildir, Öldin 16. Sauðlauksdalsannáll VI, 369: ,,1560 á dögum herra Gísla, var sá kross fluttur í Skálholt og klofinn sundur”.
Óli Jón Jónsson ritar myndskreytta grein um krossinn í Kaldaðarnesi í Sagnir, tímarit um sagnfræðileg efni, 16. árgangur 1995, bls. 22.
Hana má lesa hér:
HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)
Jón Trausti ritaði skáldsögu um krossinn helga í Kaldaðarnesi, sem lesin hefur verið í Ríkisútvarpið og heyra má á vef þess.
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
,,Elstu ritaðar heimildir um handverkshefðina prjónaskap hér á landi má finna í Bréfabók Guðbrands Þorlákssonar HólabiskupsWikiwand (opnast í nýjum flipa) frá seinni hluta 16. aldarWikiwand (opnast í nýjum flipa) en á þeim tíma voru landskuldir greiddar í prjónasaumi. Ennig má lesa í fornbréfi frá 1560Wikiwand (opnast í nýjum flipa) um prjónapreysur sem greiða mátti með landskuldir á bæ á norðurlandi". Heimild: https:AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Kaldaðarnes:
Myndi0.wp.com (opnast í nýjum flipa)
Úr Aldasöng Bjarna Borgfirðingaskálds:
Allt skrif og ornament
er nú rifið og brennt
bílæti Kristí brotin
blöð og líkneski rotin
klukkur kólflausar standa
kenning samt fögur að vanda.