Margt hafði Jón til brunns að bera
Lag Á kaupmanninn, rétt við búðarborðið
Lag Sá frjáls við lögmál
Margt hafði Jón til brunns að berabauka gerðist smiðurbiskup varð þó að væri ei sérahvað var og er þó siður.
Bauka-Jón fékk á baukinn þarer Brynjólfur mátti vígja´h'annvið sauðaþjófa saman barsekan gaf ei frían.
Heimildir og samhengi
Jón Vigfússon, ,,Bauka-Jón”, sem vikið var frá sýslu 1672, er nú, skv. fyrirmælum frá Kaupmannahöfn, vígður biskup af meistara Brynjólfi Sveinssyni í Skálholti án þess þó að hafa verið prestur áður. Hafði farið utan ári fyrr, væntanlega með þunga pyngju (sjá 1676), og sneri aftur með meistaragráðu í guðfræði. Því mun hann hafa verið vígður á Íslandi en ekki ytra, að þar hefðu vígslugjafar spurt hann út úr fræðunum. Slapp þó ekki klakklaust frá Brynjófi, sem valdi honum vígslutextann frá Jóh. 10, 1: ,,Sá sem kemur ekki inn um dyrnar inn í sauðabyrgið, heldur fer yfir annars staðar, hann er þjófur og ræningi". (1672, 1673, 1676, 1690).
(Meðal heimilda: Jón Þ. Þór, Bauka-Jón).