Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1667
1667
1667

Möðruvellir veittir tveimur

Hljóðbrot0:00

Lag Einn var að smíða ausutetur

MMöðruvellir veittir tveimurvarð þá ekki kyrrtsnart er urðu þeir að þremurþéna gerðist stirt.

Glúmur Gylfason · 1667

Heimildir og samhengi

Jón Þorláksson, bróðir Gísla Hólabiskups, kemur heim til Íslands með ársgamla veitingu frá hm. Henrik Bjelke fyrir Möðruvallaklaustri sem Jón Eggertsson - frá Ökrum í Blönduhlíð, E. Jónssonar riddara Magnússonar prúða, - hafði haft frá fógeta 1665. Jón Eggertsson þá svo viðskotaillur, að biskup Gísli fékk mág sinn, Þorstein Þorleifsson, sm. Múlasýslu, til að skipta á embættum við Jón bróður sinn. Varð þá allt á öðrum enda eftir að JE hafði farið utan og fengið konungsveitingu fyrir Klaustrinu 1670. Bar hann þá búslóð Þorsteins út, og það, að Jöklubrúin féll í gjörningaveðri 1670 var kennt konstrum hans og konu hans, Sigríðar stórráðu Magnúsdóttur frá Sjávarborg (1633), til þess að hindra för máganna. Gísli biskup, sem hugðist hjálpa Jóni bróður sínum átti að fyrstu konu systur Þorsteins, en Þorsteinn giftur systur þeirra bræðra, Jóns Þorlákssonar og Gísla biskups, þ.e., tvöfaldir mágar.
(M.a. Íslenskar æviskrár).

Páll Eggert Ólason: Íslenskar æviskrár: ,,...svo má telja, að Jón (Eggertsson) eigi sífelldar deilur við ýmsa fyrirmenn landsins til æviloka” og 6 taldir upp. Þar segir einnig að Eggert faðir hans hafi drukknað þegar sonurinn var ~12 ára og hann (því?) ekki settur til mennta, en ,,var látinn læra heima og framaðist um tíma erlendis, ...enda prýðilega vel viti borinn, vel að sér í lögum og kappsamur".
P. E. Ól: Saga Íslendinga V, bls. 399 hermir að í ritgerð á dönsku um Ísland kveði Jón Eggertsson mesta mein þess vera leti landsmanna og husunarleysi.

MyndFlickr (opnast í nýjum flipa)

FréttVísir (opnast í nýjum flipa)

Myndir

← 1666Passíusálma, Saur- frá bæ1668 →Skipin strand með fjársjóð full