Árið 1947

t.d.

3 vísur frá árinu 1947
  1. 1947Lag: Allt fram streymir endalaust

    Heklu þótti heitur skór

    að hæli sínum kreppa.
    Hér ei lengur tefur Thor.
    Troðist um hvern jeppa.

    Stórt Heklugos byrjaði að morgni 29. mars, sem var laugardagurinn fyrir pálmasunnudag. Var það eftir 102ja ára hlé, sem var það lengsta milli gosa í Heklu frá hinu fyrsta, sem annálar geta um, 1104. Gosið stóð fram í…

    Hlusta
    Thor Jensen, kaupmaður, útgerðarmaður, stórbóndiÍslensk biðröð í Bankastræti, Rvk.+3
  2. 1947Lag: Enginn kemur, enginn sjest - Bj.Þ. 830

    Látrabændur brast ei ráð

    við Bjargið fást og Dhoon
    á hengiflugi drýgðu dáð
    drógu upp tólf á brún.

    Jónas Ragnarsson, Dagar Íslands, 13. desember: ,,Björgunarafrekið við Látrabjarg. Tólf mönnum var bjargað við mjög erfiðar aðstæður af breska togaranum Dhoon, sem strandaði við Látrabjarg. Björgunarmennirnir hlutu æðstu…

    Hlusta
    Þórður Jónsson, bóndi HvallátrumLátrabjargLátrabjarg
  3. 1947

    Í Reykjavík haldin var Septembersýning

    söguleg þótti en gagnrýniverð
    skynfærum ögrað og augunum píning
    örfáir vissu hvað hér var á ferð.

    Samsýning myndlistarmanna er sýndu óhlutlæg verk sem vöktu hörð viðbrögð og gripu ýmsir pennann. Einn þeirra, Guðmundur G. Hagalín rithöfundur, vissi t.d. hvers vegna ,,listamennirnir kusu að blekkja sjálfa sig með…