Páll lýsti fullri ábyrgð á
yfirvaldsins hendur
ef að segði ei jafnskjótt já
að Jón fengist þegar brenndur
Lagarfljótsorminn loft við ber
lítið kaupmenn græða
lífi kóngsins ljúka fer
en lifir galdraræða.
Í bréfi, dagsettu 7. júní 1669 til Þorleifs lm. Kortssonar, brýnir séra Páll Björnsson í Selárdal lögmanninn til að brenna Jón Leifsson frá Selárdal í Arnarfirði. Desjamýrarannáll V, 277: ,,Sást ormurinn í Lagarfljóti…
Hlusta